24.10.1934
Neðri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í C-deild Alþingistíðinda. (3993)
87. mál, bæjargjöld á Akureyri
Jakob Möller [óyfirl.]:
Ég þarf ekki að svara hæstv. ráðh., því að mér finnst það ljóst af orðum hans, að hann hafi ekki skilið sjálfan sig í fyrri ræðu sinni. Ég fæ ekki skilið, hvernig stendur á þessari ást hans á því, að niðurjöfnunarnefndir kaupstaða fari þessar leynigötur til þess að afla tekna fyrir bæjarsjóðina, í staðinn fyrir að afla þeirra eftir gildandi lögum. Hæstv. ráðh. sagði, að auðveldlega mætti ná þessum gjöldum með því að leggja á rekstrarútsvör. Nú segir hann í hinu orðinu, að það hafi orðið að fara inn á þessa braut sem nauðungarráðstöfun.
En hvers vegna vill hæstv. ráðh. ekki láta neitt orð koma um þetta frá hæstv. Alþ., það fæ ég ekki skilið — og ég skil það þó, — hæstv. ráðh. vill ekki horfast í augu við þann veruleika, að það er keyrt úr hófi með álagningu á þann tekjustofn, sem fyrst og fremst á að leggja á. Þess vegna vill hæstv. ráðh. látu fara þessar leynigötur.