04.12.1934
Neðri deild: 50. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í C-deild Alþingistíðinda. (4014)

87. mál, bæjargjöld á Akureyri

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller) [óyfirl.]:

Ég get ekki tekið undir það með hv. 2. þm. N.-M., að það sé í raun og veru svo ákaflega mikil óhæfa, þó kaupstaðir eða kauptún úti um land gerðu það, sem hann kallar að velta af sér gjöldum yfir á nærliggjandi sveitir. Það er meiri sanngirni í þessu heldur en hv. þm. vill vera láta. Það er nú rangt hjá honum líka samkv. því, sem hv. flm. þessa frv. upplýsir, að það sé verið að breyta útsvarsbyrðinni, sem hvílir á bænum, yfir í þennan skatt. Það er skýrt tekið fram, enda vel skiljanlegt, að það er fyrst og fremst tilgangurinn með þessu frv. að gera Akureyrarbæ kleift að standa straum af auknum útgjöldum, sem fara þar, eins og í öðrum bæjarfélögum, sívaxandi vegna erfiðleika atvinnulífsins, og alveg sérstaklega í sambandi við atvinnubæturnar. Það er gert ráð fyrir því, að bæjarfélögin standi straum af atvinnubótunum að 2/3 á móti ríkissjóði, og ef þetta á að vera nokkuð annað en rétt til að sýnast, verður að gera bæjarfélögum kleift á einhvern hátt að afla þessa fjár, sem er skilyrðið fyrir því, að nokkur eyrir fáist til atvinnubóta. Mér er kunnugt um það, að á Akureyri er gert ráð fyrir, að verja þurfi mjög miklu fé til atvinnubóta á næsta ári. Atvinnuvegirnir þar hafa gengið svo illa á síðastl. ári, að til stórvandræða horfir. Og það, að lagt er inn á þessa leið, er vitanlega neyðarúrræði, sem gripið er til, til þess að sjá sér einhvernveginn farborða.

Hv. 1. landsk. hefir lagzt á móti þessu frv. og hefir látið í ljós efasemd sína um það, að heimildin til þess að leggja á útsvar væri notuð út í æsar á Akureyri á sama hátt og gert væri hér í Reykjavík. Hann gerði ekki nokkra grein fyrir því, hvað hann ætti við með þessu, en ég er hinsvegar ekki í vafa um, að hann hefir átt við það, að hann efaðist um, að á Akureyri væru notuð rekstrarútsvör á sama hátt og hér í Reykjavík. Ef þetta hefir ekki verið meining hv. þm., þá væntanlega leiðréttir hann það. Ég skil ekki, hvern mun hv. þm. gerir á því, hvort þetta gjald er lagt á með útsvari, sem lagt er á rekstur eftir viðskiptaveltu, eða að gjöld séu lögð á sem vörugjald. Það, sem lagt er á viðskiptaveltu, kemur mjög svipað niður að því leyti, að það jafnast ekki niður eftir efnum og ástæðum og með því er á sama hátt velt gjöldum yfir á aðrar sveitir. Þetta kemur niður eins og tollar. Eini munurinn, sem á þessu er, er sá, að segja má, að slík álagning mundi verka nær því, sem verðtollur gerir samanborið við þungatoll, en á þessu tvennu virðist ekki vera neinn verulegur principmunur, svo ástæða geti verið til að leggjast á móti þessari heimild og vísa til þess, að það megi leggja á viðskiptagjald. Principið virðist vera það sama. Og þess vegna þykist ég vita, að hv. 1. landsk. sparaði sér það ómak að gera grein fyrir því, á hvern hátt hann ætlaðist til, að útsvarsheimildin væri notuð á Akureyri á svipaðan hátt og hér í Reykjavík. Ég get ekki hugsað mér, að það hafi vakað fyrir þessum hv. þm. þetta sérstaka ástand, sem við vitum, að er á Akureyri að vissu leyti ósambærilegt við Reykjavík, að höfuðverzlunin þar er í höndum eins aðila, sem ekki væri hægt að leggja þetta viðskiptagjald á. Ef ætti að leggja á útsvar þar með sama hætti og hér, mundi það verka sem stórkostleg vernd fyrir þetta fyrirtæki á kostnað annara, sem verzlun reka. Ég get ekki hugsað mér, að það hafi beinlínis vakað fyrir þessum hv. þm. að nota útsvörin þannig að hlaða undir eitt einstakt verzlunarfyrirtæki á kostnað annara. En hinu hefði ég getað búizt við, að þessi hv. þm. hefði getað gert sér grein fyrir, að þessar ástæður gera það að verkum, að þessi leið til tekjuöflunar er gagnslaus fyrir Akureyri, því hún nær ekki til aðalverzlunarinnar; hún sleppur gjaldfrjáls. Það er því að vísa á steina í staðinn fyrir brauð, að segja Akureyringum, að þeir geti farið þá leið að leggja á viðskiptaveltu. Þetta er Akureyringum fullljóst, þar sem á bak við þessa heimild, sem hér um ræðir, um að leggja á vörugjald, standa allir flokkar í bæjarstjórninni. Þar á sæti forstjóri þessa verzlunarfyrirtækis, sem mundi sleppa við þetta gjald, ef lagt væri á almennt viðskiptagjald. Hann gerir sér því bersýnilega fulla grein fyrir því, að Akureyringum væri ekkert gagn í því að fara þá leið, og hinsvegar játar hann líka, að það sé sanngjarnt, að þetta fyrirtæki leggi af mörkum fullkomlega á borð við aðra undir þeim kringumstæðum, sem nú eru þar. Það má líka benda á það, að flokksbróðir hv. 1. landsk. í bæjarstjórn Akureyrar er þessu líka fylgjandi, og má af því draga þá ályktun, að það sé einróma álit manna þarna norður frá, að önnur leið sé ekki fær eins og stendur til þess að ráða fram úr vandræðunum, sem þar er við að stríða. Þessi afstaða kaupfélagsstjóra Eyfirðing, sýnir og hitt, að hann telur ekki með öllu ósanngjarnt, að það sé gert, sem hv. 2. þm. N.-M. drap á og vítti, að velt væri gjöldum að einhverju leyti yfir á nærliggjandi sveitir. Og sú ástæða er til þess, að það er auðvitað, að á þeim erfiðleikatímum, sem nú eru fyrir atvinnuvegina, þá fer svo, að kaupstaðir og bæjarfélög leggja svo og svo mikið fé fram til þess að bæta úr atvinnuþörf nærliggjandi sveita, því að þeir, sem atvinnulausir eru í sveitunum, leita til kaupstaðanna til þess að fá atvinnu. Þess vegna er það ekkert ósanngjarnt, þó að velt væri einhverju af þeim gjöldum, sem fara til þess að ráða fram úr þessum vandræðum, yfir á nærliggjandi sveitir. Ég tel þetta líka viðurkennt af flokksmönnum hv. 2. þm. N.-M. í bæjarstjórn Akureyrar, sem eindregið hafa lagt það til, að þessi heimild verði veitt.

Ég þykist vita, að ekki þurfi að halda langar ræður um þetta mál hér, því að ég er sannfærður um það, að meiri hl. þessarar hv. d. er svo sanngjarn, að hann telur sér skylt að ráða fram úr þessu í bili á þennan hátt, fyrst og fremst af því, að ekki hefir verið hægt að benda á nein önnur úrræði til þess að ráða fram úr þessum vandræðum. Það stoðar ekki að vísa til þess, að einhverntíma á næstu þingum muni menn snúa sér að því að létta byrðunum af sveitarfélögunum, eða koma á almennum tryggingum og þess háttar. Það getur verið gott, þegar þar að kemur, en hreint ekki fyrr. Þeir erfiðleikatímar, sem nú eru, verða ekki léttbærari, þó að ráðstafanir í þessa átt kunni að verða gerðar einhverntíma í framtíðinni. Það er óforsvaranlegt, þegar bæjarfélög koma til Alþ. og biðja um aðstoð til þess að ráða fram úr vandræðum sínum, að vísa þá til einhvers, sem gert verður eftir 2 eða 3 ár. Slíkt er gersamlega óverjandi afstaða af hálfu Alþ., og ég er þess vegna sannfærður um, að meiri hl. d. samþ. frv. með brtt. þeirri, sem n. hefir gert, enda sýnir afstaða n. til málsins, að þetta er ekki flokksmál, heldur nauðsynjamál, sem verið er að ráða fram úr.