11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í C-deild Alþingistíðinda. (4031)

46. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Jakob Möller [óyfirl.]:

Ég vil leyfa mér að bæta við það, sem hv. 8. landsk. beindi til n. Ég álít æskilegt, að n. upplýsi, hvernig styrkur er greiddur úr ríkissjóði. til hve margra o. s. frv., því að aðdróttanir hafa komið upp um það, að styrkveiting þessi væri misnotuð. Það er upplýst, að þessi styrkveiting er ætluð til þess að styrkja bændur til að koma upp íshúsum til þess að frysta kjöt til útflutnings. Einnig hefir verið greiddur styrkur til þess að kaupa eða koma upp íshúsum hér og þar, sem varla kemur til greina, að kjöt sé fryst í til útflutnings.

Þetta er grunur manna. Þetta atriði ætti þess vegna að upplýsa til hlítar, svo að enginn vafi geti leikið á því, hvort um misnotkun er að ræða.