02.11.1934
Neðri deild: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (4062)

122. mál, Kreppulánasjóður

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég ska1 engan dóm á það leggja, hvernig Jón í Stóradal hefir leyst af hendi störf sín í Kreppulánasjóði. Hefi ég a. m. k. ekki heyrt neinar kvartanir um hann eða aðra starfsmenn þar. Enda er frv. ekki af neinum slíkum rótum runnið. Ástæðan til frv. er sú, að þegar aðalstörf sjóðsins virðast búin, þá sýnist það vera nauðynjalaust að greiða 21600 kr. fyrir stj. hans, þar sem ekki er hægt að telja það ofætlun bankastjóranna í Búnaðarbankanum að annast störf hans. Er ekki ástæða til að ætla, að þó að Jón í Stóradal hætti að hafa þessi 7200 kr. laun, þá verði starfið ekki sæmilega af hendi leyst. Þessi breyting myndi ekki heldur ganga út yfir hann einan, heldur líka bankastjórana Tryggva Þórhallsson og hv. 2. þm. Rang. Tryggvi Þórhallsson hefir nú 26400 kr. við Búnaðarbankann og Kreppulánasjóð, og myndu þau laun lækka niður í 19200 kr. Tekjur hv. 2. þm. Rang. myndu einnig lækka um 7200 kr. Það er skoðun okkur flm., að bankastjórar Búnaðarb. geti vel leyst af hendi þetta starf.

Viðvíkjandi orðum hv. þm. V.-Húnv. vil ég taka það fram, að hv. þm. Mýr. hefir ekki verið hafður í ráðum um þetta frv. Það erum við flm. einir, sem þar höfum átt hlut að máli.