11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (4080)

50. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Flm. (Hannes Jónsson):

Það er náttúrlega ekki nema gott við því að segja, ef stj. leggur fram frv. til l. um betra skipulag á lánakjörum landbúnaðarins. Og ég er ekki hræddur um, að mér komi ekki saman við hæstv. ráðh. og Framsf1. um þá hluti. Því að ég er vel tilleiðanlegur til að ganga lengra í þeim efnum en ég geng í þessu frv., enda hefir Framsfl. lýst yfir því opinberlega, að hann vildi ganga lengra en frv. þetta fer. (Fjmrh.: Hvar er sú yfirlýsing?). Það má benda hæstv. ráðh. á það, ef hann hefir ekki lesið „Tímann“ síðasta árið.

En með þessu frv. er aðeins gert ráð fyrir því að gefa stj. heimild til endurgreiðslu samkv. þessu frv. Og jafnvel þó að svo færi, að annaðhvort á þessu þingi eða næsta þingi yrði sett endanleg löggjöf um lánaþörf landibúnaðarins, þá er engin hætta af því að lofa þessu frv. að ganga fram. Hæstv. ráðh. ætti ekki að vera neitt óánægður með heimild til slíkra ráðstafana. Ég er ekki í vafa um, að hann álítur landbúnaðinum fulla þörf á vaxtaívilnunum, annaðhvort með endurgreiðslu frá ríkissjóði til stofnana, sem bændur skulda, eða í öðru lagi, sem er miklu æskilegra og eðlilegra, að lánin séu yfirfærð í önnur hagkvæmari lán. Hér er því ekki um annað að ræða en nokkra tryggingu fyrir ríkisstj. fyrir að mega gera lánakjör landbúnaðarins sæmileg, ef svo færi, að ekki tækist á þessu þingi — eða svo snemma, að til framkvæmda kæmi á næsta ári — að setja fullkomna löggjöf um lánaþörf landbúnaðarins. Það er líka hægurinn hjá fyrir hæstv. ráðh. að kippa að sér hendinni um fjárveitinguna, ef hann sér engin tök á fyrir ríkissjóð. Vitanlega ætlumst við til, að heimildin verði notuð. Og ég á bágt með að trúa því, að ekki væri hægt með fjárlagafrv. sjálfu, eins og það liggur fyrir, að færa svo til á því, að þetta frv., þótt að lögum yrði, þyrfti ekki að valda neitt verri útkomu á ríkisbúskapnum en stefnt er að.