13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í C-deild Alþingistíðinda. (4155)
128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna
Sigurður Kristjánsson:
Það er vitanlega sjálfsagt, að menn eiga ekki að viðhafa óþingleg orð, og ég skal taka áminningu hæstv. forseta vel að því leyti, að ég tel sjálfsagt, að þess sé gætt almennt. En ég vil benda hæstv. forseta á, að ég hefi hér fyrir mér árásarskjal, sem ekki á sinn líka meðal þingskjala, þar sem bornar eru þungar sakir með grófum orðum á mig og samstarfsmenn mína, og farið með bein ósannindi. Orðið lýgi er t. d. ljótt orð, og ég hefi skirrzt við að nota það, en þegar um það er að ræða, sem er lygi, þá er ekki hægt að komast hjá því að nefna þau hugtök, sem þar eiga við, ef maður vill segja satt og rétt frá.
Þegar ég aftur á móti á að mæla um svona plagg, þá get ég ekki gengið svo á bak við sannleikann, að ég ekki hafi einhver orð í þá átt sem við eiga. Ég vil þó leggja áherzlu á það, að vegna þeirrar hv. samkomu, sem við erum á, og vegna hæstv. forseta hefi ég mjög slegið af þeim orðum, sem við hefðu átt, og annars hefðu mátt vera stórum sterkari, eftir tilefni þeirra.