14.12.1934
Neðri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (4165)
128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna
Thor Thors:
Þetta mál hefir nú verið rætt allýtarlega. Sérstaklega hefir hv. 1. flm. þessa frv., hv. 6. þm. Reykv., gert frv. sjálfu og þeim andmælum, sem fram hafa komið, mjög góð skil, eins og hans var von og vísa.
Ég veit, að það er raunar þýðingarlaust að ræða þetta mál frekar en önnur þau mál, sem Sjálfstfl. hefir beitt sér fyrir á þessu þingi. Örlög þeirra allra virðast fyrirfram ákveðin. Hversu góðan rökstuðning sem við getum flutt fyrir þeim og hversu greinilega sem við getum bent á óskir þjóðarinnar á bak við þau, þá kemur það fyrir ekki. Ég veit einnig, að örlög þessa frv. eru ákveðin með þeirri rökst. dagskrá, sem nú liggur hér fyrir frá meiri hl. sjútvn. En mér finnst viðeigandi, að hv. 1. flm. sé ekki einn um að fylgja því til grafar. Heldur vil ég, sem er að röðinni til síðasti flm. frv., halda í einn hankann á kistu þess um leið og það er nú borið út úr þinginu.
Það er ætlazt til þess í þingsköpum, að við 2. umr. séu ræddar brtt., sem fyrir kunna að liggja, svo og einstakar gr. frv. Hér liggja nú engar brtt. fyrir. Ég verð því að halda mér við aðalefni frv. og það banatilræði, sem því er veitt með þeirri rökst. dagskrá, sem fram er borin.
Ég vil þá sérstaklega víkja að þeim rökstuðningi, ef rök skyldi kalla, sem meiri hl. sjútvn. ber fram í sínu svokallaða nál. Um sjálft aðalefni frv. er það öllum hv. þm. mjög vel vitað, að það miðar að því að veita útgerðarmönnum samskonar skuldaskil og landbúnaðinum voru veitt með kreppulánalöggjöfinni. Þegar sú löggjöf var á ferðinni hér á þingi, má segja, að hún hafi mætt almennri velvild og þar hafi komið fram víðsýni sjávarútvegsmanna til þess að reisa við landbúnaðinn. Því miður verður ekki sagt, að samskonar víðsýni og skilningur. Hafi mætt þessari alveg sjálfsögðu og samskonar hjálp sjávarútveginum til handa. Þegar þetta bjargráð landbúnaðarins var rætt hér á þingi, þá var ekki spurt, hvar ætti að taka fé til að framkvæma það. En það hafa heyrzt mjög háværar raddir gegn þessu frv. vegna þess, að ekki eru bornar fram ákveðnar till. til þess að fá ríkissjóði fé til að standa undir framkvæmd þessa máls.
Aðalstuðningur sá, sem veita á Skuldaskilasjóði samkv. 2. gr. frv., er það, að útflutningsgjald af sjávarafurðum skuli renna í sjóðinn. Það nemur árlega um 800000 kr. En þar sem nú yrði nokkur dráttur á því, að sjóðurinn með þessu tillagi yrði þess megnugur að inna af höndum þetta starf, þá er einnig í 3. gr. frv. gert ráð fyrir, að ríkissjóður taki lán, 3 millj. íslenzkra króna eða tilsvarandi upphæð í erlendri mynt, sem strax renni í sjóðinn. Síðan sé þetta tillag árlega greitt af útflutningsgjaldi sjávarafurða.
Nú er í fyrsta lagi ekki ósanngjarnt, þegar búið er á þessu þingi að samþ. að leggja niður útflutningsgjald á landbúnaðarafurðum, að þá verði gerð gangskör að því á sama þingi, að sá óréttmæti skattur, sem nú er á útfluttum sjávarafurðum, sé notaður til þess að bjarga sjávarútveginum úr þeim ógöngum, sem hann nú sökum hinnar miklu heimskreppu er staddur i. En þetta hefir þó ekki þótt sanngjarnt. Hæstv. fjmrh. hefir jafnvel viðhaft þau orð, ef ég man rétt, að það væri beinlínis hneyksli að bera fram slíkt frv. sem þetta, þar sem ríkissjóði væri ekki séð fyrir öðrum tekjum. Ég vil benda á það, að með þessum rökstuðningi, ef rökstuðning skyldi kalla verður þetta frv. ekki drepið. Form. Sjálfstfl. hefir lýst því yfir greinilega við umr. um þetta mál, að Sjálfstfl. væri reiðubúinn til samninga um að bæta ríkissjóði þann tekjumissi, fyrir það að útflutningsgjaldið væri látið renna í þennan sjóð, svo að þetta fær ekki staðizt. Og það er dálítið einkennilegt, að bera þessar móttökur saman við það tiltæki hjá stjórnarflokkunum í sambandi við hið hættulega frv. um fiskimálan., þar sem lagt er til að veita til sjávarútvegsins einu millj. kr. til ýmissa nýmæla við þá atvinnugrein. Þá hafa stjórnarflokkarnir gersamlega gleymt að spyrja, hvernig ætti að sjá fyrir tekjum í þessu skyni, heldur var það beint till. þeirra, að 1 millj. yrði tekin að láni. Þetta sýnir glögglega, að þegar mál eru borin fram af stjórnarflokkunum, þá geta allar leiðir verið opnar til framlags úr ríkissjóði eða lántöku, en þegar þau eru borin fram af Sjálfstfl., þá eru öll sund lokuð, jafnvel þó að frv. séu jafnvel undirbúin og það, er hér um ræðir, sem er rökstutt með skýrslu, sem mþn. í sjávarútvegsmálum hefir samið og lagt fyrir þingið. Það er mjög hryggilegt, að sjávarútvegurinn skuli eiga slíku kaldlyndi að mæta hér á þingi, og leitt til þess að vita, að sú víðsýni, sem sýndi sig hér á þingi við afgreiðslu kreppulaganna til handa bændunum, skuli nú ekki lengur vera fyrir hendi, þegar rætt er um samskonar þörf sjávarútvegsins.
Ég kemst ekki hjá að víkja að því, sem hv. þm. Ísaf. sagði í sinni ræðu í garð hv. 6. þm. Reykv., að starf hans í mþn. hefði verið næsta þýðingarlítið og árangurinn af því mjög rýr, og það væri hneyksli, að hann hefði verið skipaður í n. Ég þekki hv. 6. þm. Reykv. sem sérstaklega greinagóðan mann og mikinn starfsmann, og ég veit, að það var sérstakt lán fyrir mþn., að einmitt hann var skipaður til þessa starfa. Enda er hann gerkunnugur sjávarútveginum. Hann hefir alizt upp þar, sem mikil vélbátaútgerð er rekin, og hann sem maður, er alla tíð hefir haft mikinn áhuga fyrir atvinnumálum þjóðarinnar, hefir frá því fyrsta fylgzt mjög rækilega með þeim rekstri. Ennfremur hefir hann átt sæti í stjórn togarafélags og þannig haft tækifæri til að kynna sér ofan í kjölinn rekstur þeirrar útgerðar. Ég álít því mjög vel ráðið, að einmitt hann skyldi verða valinn til þess að gegna þessu þýðingarmikla og vandasama starfi. Eins og ég hefi áður bent á, bera skýrslur þær, sem mþn. hefir skilað af sér, þess ljósan vott, að af mikilli samvizkusemi og gaumgæfni hefir verið unnið í n., en það er meira en megi segja um þær mþn., sem stj. ber meiri ábyrgð á en þessari.
Ég veit, að hæstv. forseti viðurkennir, að ég get ekki rætt þetta mál á annan hátt en að taka til greina þann rökstuðning, sem á að verða þessu máli hér að falli. Verð ég því að snúa mér að nál. sjálfu og fara um það, nokkrum orðum, enda þótt hv. 6. þm. Reykv. hafi gert það mjög rækilega.
Það kemur í fyrsta lagi fram í nál., að meiri hl. vill aðeins sinna smáútgerðinni og vélbátaútgerðinni, og aðeins þessum tveimur liðum útgerðarinnar sé hjálpað til að fá skuldaskil. En ég vil benda á, að kreppulögin voru hér á ferðinni, þá var ekki verið að tala um að skipta bændum í flokka, eftir því hvort þeir höfðu smáan eða stóran búrekstur, heldur áttu allir að njóta þeirra hlunninda, sem l. fólu í sér, og ég man það glögglega, að hæstv. fjmrh. hafði einu sinni þau orð í útvarpsumr., þar sem við leiddum saman hesta okkar, að það væri ekki meining Framsfl. að skipta um menn í bændastéttinni. Það er ekki heldur meining Sjálfstfl. að nauðsynjalausu að skipta um menn í útgerðarstéttinni. Sjálfstfl. vill, að það sama nái til allra atvinnurekenda landsins.
Ég verð því að telja það fyllstu nauðsyn, að vandræðum stórútgerðarinnar sé einnig sinnt, þegar þetta mál er tekið til úrlausnar, og viljum við í því sambandi sérstaklega benda á það, hversu veigamikinn þátt stórútgerðin hefir á undanförnum árum átt í atvinnulífi þjóðarinnar. Það er öllum hv. þm. ljóst, sem með einhverri sanngirni vilja líta á þetta mál, að þær stórkostlegu framfarir, sem hafa orðið á síðustu árum á sviði atvinnulífsins og framkvæmda ríkissjóðs, þær eru að mjög miklu leyti því að þakka, að menn tóku að sækja á djúpmiðin og taka í sína þjónustu hin stærri framleiðslutæki, togarana. Hver einasti sanngjarn maður hlýtur að viðurkenna, að það er þessi atvinnurekstur, sem hefir verið drýgsta mjólkurkýrin fyrir atvinnulífið og ríkissjóð á undanförnum áratugum. Hver einasti sanngjarn maður mun ennfremur viðurkenna að það er ekki kleift fyrir þjóðina, ef hún vill lifa við sæmileg menningarkjör, að leggja þennan þátt sjávarútvegsins í rústir. Kröfur þjóðarinnar hafa vaxið svo á síðari árum, að það þarf meiri og stærri framleiðslutæki til að fullnægja þörfum hennar en þurfti fyrir nokkrum áratugum. Og menn hljóta að viðurkenna að togararnir eru nú nauðsynleg veiðitæki.
Ég vil einnig benda á það, að hér kemur greinillega fram misræmi í stefnu Alþfl. Ég vil minna á það, hvernig sá flokkur gerði það að sínu stærsta máli fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Reykjavík s. l. janúar, að keyptir væru inn í bæinn 6—10 nýir og stórir togarar. Það hefir að vísu ekkert bólað á, að flokkurinn hafi reynt að framkvæma þennan göfuga ásetning, eftir að hann hafði fengið þá valdaaðstöðu, að hann gat, hve nær sem hann vildi, komið þessu stórmáli sínu í framkvæmd. En þetta var stórkostlegt agitationsnúmer hjá þeim, meðan þeir voru í minni hl. Nú hefir hinsvegar heyrzt á þessu þingi af munni hæstv. atvmrh., að útgerðarmenn séu ámælisverðir fyrir það, hversu mjög þeir hafi hugsað um að veiða sem mest. Hæstv. atvmrh. er ekki viðstaddur hér, svo að ég skal ekki fara langt út í þetta, en ég hygg, að almenningur hér á landi hefði orðið var við það, ef útgerðarmenn, smáir og stórir, hefðu ekki látið sér svo mjög um hugað að veiða sem mest. Það er langt frá, að þeir séu ámælisverðir fyrir það, heldur mjög lofverðir fyrir það, að samtímis því, sem þeim hefir tekizt að auka framleiðsluna fyrir atorku og dugnað hinnar tápmiklu sjómannastéttar, þá hefir þeim einnig tekizt að koma þessari auknu framleiðslu í verð á kostnað okkar erlendu keppinauta, sem þó að flestu leyti hafa átt við betri skilyrði og aðstöðu að búa. Ég fæ því ekki betur séð en að það sé sama nauðsynin að rétta við stórútgerðina eins og smáútgerðina, þegar að því verður horfið að koma sjávarútveginum í það horf hvað þetta áhrærir, að hann geti átt við lífvænleg kjör að búa til frambúðar. Það hefir verið sagt, að það megi ekki flaustra af þessum skuldaskilum, þar þurfi allt að vera vel undirbúið. En ég hygg, að það hafi ekki komið önnur frv. fyrir þetta þing, sem hafi verið betur undirbúin en þetta frv., með þeim rökstuðningi, sem felst í skýrslum mþn. Spurningin er aðeins sú, hvort menn vilja eða vilja ekki sinna því, þá er hitt auðgert, eftir að bent hefir verið á skýrar leiðir til þess að ná þessu marki. Þetta orðatiltæki, að flaustra málinu af, dæmir sig því sjálft við nánari athugun málsins. Vitanlega taka skuldaskil allra sjávarútvegsmanna langan tíma, en þeim mun fyrr verður þeim lokið, sem fyrr er hafizt handa.
Þá er vikið að því í sama nál., að skuldaskil verði ekki útveginum til bjargar. Er bent á það, að þó allar skuldir hefðu verið strikaðar út á árunum 1930, 1931 og 1932, þá hefði samt sem áður orðið um 5 millj. kr. rekstrarhalli á útgerð landsmanna. Ég skal ekki vefengja það, að meiri hl. n. hafi tekið þetta rétt upp úr skýrslum mþn., en ég vil benda á það, að hér eru tekin út úr þau allra verstu ár, sem yfir útveginn hafa gengið. Hér er talið með árið 1931, þegar hið mesta hrun, sem sögur fara af, kom yfir þennan atvinnuveg, þegar afli landsmanna varð lítt seljanlegur á erlendum markaði og fór dagfallandi. Ég hygg, að er sæmilega lætur í ári og með viðunandi verðlagi á sjávarafurðum, sem ég álít, að sé tryggt í höndum sterkra sölusamtaka útgerðarmanna. eins og S. Í. F., þá yrði það vaxtabyrðin, sem ríður baggamuninn fyrir útgerðarmenn. Ef hægt væri að lækka vaxtabyrðina til mikilla muna til viðbótar við unnað, sem sjálfst.menn vilja láta gera sjávarútveginum til hjálpar, þá mundi það verða tryggt að sjávarútvegurinn gæti dafnað vel. Einnig þessi rök hv. meiri hl. eru því ekki réttmæt. Þá eru í nál. nokkrar dylgjur um það að hv. minni hl. sjútvn., hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Vestm., hafi lokað augunum fyrir einum verulegum útgjaldalið útgerðamanna, hinu háa verðlagi á útgerðarvörum, svo sem t. d. salti. Segir í nál., að ástæðan til þess, að það er ekki gert, geti legið í því, að meiri hl. n. sé úr sama stjórnmálaflokki og þeir menn, sem hafi hag af þessari verzlun. Þetta er auðvitað skætingur og ekki annað, en það er nokkuð einkennilegt, að hv. þm. Ísaf., sem a. m. k. að nafni til á að heita framkvæmdarstjóri fyrir nokkuð stóru útgerðarfélagi hér á landi, skuli ekki vita, hvernig saltverzlunin er rekin hér á landi. Það er flutt inn í stórum förmum fyrir vissa landhluta, og víða eru það kaupfélögin, sem kaupa þessa vöru og miðla henni í hinar ýmsu verstöðvar. Annarsstaðar eru það smáútgerðarmennt, sem hafa samtök um að kaupa heila skipsfarma. Að saltverðið á Hornafirði sé sérstaklega hátt, skal ég ekkert segja um, en býst við, að hv. þm. A.-Sk. geti upplýst það. En þar er það kaupfélag sem hefir mestan hluta saltverzlunarinnar, og ég hygg, að annað verzlunarfyrirtæki stundi ekki saltverzlun eins og sakir standa í þessu kauptúni nú. Á síðari árum hefir saltverzlunin mjög hnigið í það horf, að ýmist hafa smáútgerðarmenn í ýmsum verstöðvum myndað með sér samtök um saltkaup, eða að kaupfélögin hafa tekið að sér þessa verzlun, en að hv. 6. þm. Reykv. sé studdur af þeim félagsskap, held ég að sé tómur misskilningur.
Mér þykir leitt, að hv. þm. Ísaf. skuli ekki vera hér viðstaddur. Nú, hann er þarna í ráðherraherberginu. Ég get skilið, að hann hafi gaman af því að sitja í þessu herbergi. hann kemst vissulega aldrei nær ráðherrasætinu en þetta. Ég vil gjarnan minnast hér á eitt atriði, sem kemur fyrir í nál, en það er, að lítil útgerðarfyrirtæki hér á landi hafi hvert fyrir sig marga framkvæmdarstjóra. Ég þekki ekkert lítið fyrirtæki, sem hefir marka framkvæmdarstjóra, en ég þekki eitt stórt fyrirtæki, sem oft er talað um og tilgreint er, að hafi 5 framkvæmdarstjóra, en þeir eru nú ekki nema 4. Og þetta félag hefir auk útgerðar 7 togara mjög stórfelld fiskkaup með höndum. Það verzlar árlega með frá 40 til 50 þús. skippund af saltfiski og verkar þennan fisk sjálft á 4 fiskverkunarstöðvum hér í Reykjavík, auk þess sem félagið á og rekur fiskverkunarstöðvar á ýmsum stöðum úti um land. Það rekur eina til tvær síldarbræðsluverksmiðjur, og ennfremur rekur félagið stórfellda verzlun með kol, salt, veiðarfæri og beitusíld. Ég hygg, ef stjórnarflokkarnir ættu að skipta þessu fyrirtæki niður í mörg smærri fyrirtæki, þá mundi afleiðingin verða sú, að framkvæmdarstjórunum yrði þar fjölgað að mun. Enda þótt fyrirtækið hafi í tvö ár rekið tvær síldarverksmiðjur, hefir ekki verið bætt við framkvæmdarstjóra þau árin. Til samanburðar má benda á það, að ríkið hefir rekið eina síldarverksmiðju, og til þess að stjórna henni hefir verið, auk framkvæmdarstjóra, þriggja manna stjórn, og það má búast við því, að stjórnarlið þessa ríkisfyrirtækis verði stórum aukið, er það færir út kvíarnar. Hitt fyrirtækið, sem ég talaði um, er hlutafélag, og hluthafarnir eru ekki aðrir en framkvæmdarstjórarnir, og séu þeir að sliga félagið, þá eru þeir ekki að sliga aðra en sjálfa sig. Og ég skal lýsa því yfir í eitt skipti fyrir öll, hve mikill stjórnarkostnaður hvílir á hverjum togara hjá þessu félagi, sem öllum er ljóst, að er hlutafélagið Kveldúlfur og það eru 8 þús. kr. á ári, og það er allur skrifstofukostnaður, framkvæmdastjórn og verkstjórn í landi. Ég efast um, að þessi kostnaður hefði orðið minni hjá bæjarútgerðinni í Hafnarfirði, ef hún hefði haft jafnvíðfeðma útgerð og verzlun og þetta félag hefir, eða að slíkur kostnaður sé hlutfallslega lægri í félagi því, sem hv. þm. Ísaf. stjórnar. Ég er ánægður yfir því að hafa fengið tækifæri hér til þess að sýna fram á, hve hinar þrálátu, ofstækisfullu og nærri því að segja og sóknarfullu árásir á hlutafélagið Kveldúlf hafa við lítil rök að styðjast. Þá kemst hinn djúpvitri hv. þm. Ísaf. að þeirri niðurstöðu, að „skipin séu alltaf að sökkva dýpra og dýpra í skuldafenið“, rétt eins og þetta skuldafen sé eitthvert haf, sem skipin séu að sökkva í. Honum ætti að vera það ljóst, að ef hér er um eitthvert haf að ræða, þá eru það ekki skipin sjálf, sem eru að sökkva í það, heldur eigendur þeirra. — skipin sjálf fljóta áfram.
Þá kem ég að hinu margendurtekna árásarefni um það, að eigendurnir endurnýi ekki skipin, og er því aðallega beint að togaraeigendum. En sannleikurinn er nú sá, að þeir verja a. m. k. að meðaltali á ári 30 þús. kr. til viðhalds hverjum togara. Þetta mun svara sem næst til tíunda hl. af verði togaranna, og sjá allir, að það er mikið viðhald, miðað við hið erfiða árferði, enda er það svo mikið sem unnt er fyrir eigendurna að láta það vera. Enda þótt togararnir séu nokkru eldri en æskilegt hefði verið, þá er íslenzku togurunum yfirleitt betur viðhaldið heldur en á sér stað með erlendum þjóðum.
Þá segir hv. þm. Ísaf. í dýpt síns vísdóms og mikla mannvits, að „skipin séu nú brátt sokkin í skuldafenið, og þá standi landsmenn uppi skipalausir“. Ég get ekki skilið þetta, og ég verð að staðhæfa, að þau verða öll áfram a. m. k. í mörk ár enn á yfirborði hafsins.
Síðan fer hv. þm. að tala um það, sem sífellt klingir við bæði utan þings og inna í sambandi við sjávarútvegsmál, að það sé ekki nóg fyrir sjávarútveginn að fá skuldaskil, heldur þurfi líka að skipuleggja afurðasöluna út á við. Ég skal ekki segja, hvort þörfin á slíkri skipulagningu er eins mikil og hv. þm. vill vera láta, en ég er sammála honum um það, enda hefir hann lært af sjálfstæðismönnum hér á þingi að skilja það, að það verður að tryggja framtíð útgerðarinnar, með því að koma afurðasölunni í fast horf og með því að fá sem hæst verð fyrir afurðirnar. En ég staðhæfi, að eina leiðin til þess að ná því marki er sú, að útgerðarmennirnir sjálfir annist sína afurðasölu með sterkum frjálsum samtökum. En einmitt þeir, sem fjasa mest um frjálst skipulag, hafa nú dregið rýtinginn úr slíðrum og vilja hin frjálsu samtök feig. Ég skal ekki fara langt út í það mál, en trúað gæti ég því, að einhverntíma iðri þá þess, hvernig þeir nú fara að. Það hefir að vísu aldrei verið mikils vænzt af hv. form. sjútvn., en því miður hafa honum vitrari menn látið hann og hans líka ráða, en hann stjórnast eins og kunnugt er af persónulegri óvild og valdagirni.
Þá er það eitt, sem endurtekið er í rökum hv. meiri hl., að Sjálfstæðisfl. sé ekki umhugað um að bæta úr bráðum voða, sem fisksalan sé nú stödd í. Ég hefi áður í ræðu minni vikið að þessari ásökun, en ég vil nú nota þetta tækifæri til þess að undirstrika þau orð annara minna flokksbræðra, að með frv. um fiskiráð, í sambandi við markaðs- og verðjöfnunarsjóð, var gerð mjög fullkomin tilraun af Sjálfstfl. til þess að leysa hin alvarlegu vandræði, bæði um sölu á saltfiski og eins nýjungar í verkunaraðferðum.
Ég er þá kominn að sjálfum rýtingnum, hinni rökst. dagskrá, sem væntanlega verður samþ. Þar er þess getið, að skuldaskil komi útveginum ekki að gagni nema að litlu leyti. Þetta má að nokkru leyti til sanns vegar færa. Engu að síður hefir það verið krafa Sjálfstfl., og hún er studd með þeim mörgu erindum, sem Alþ. hafa borizt frá útgerðarmönnum um allt land, og ekki síður úr kjördæmum stjórnarflokkanna, að skuldamál sjávarútvegsins verði leyst þegar á þessu þingi. Það er öllum ljóst, að skuldaskil geta ekki farið fram með skjótri svipan. Þau hljóta að taka langan tíma, en einmitt það sýnir, að nauðsyn er á því, að sem allra fyrst sé hafizt handa. Ég lét þess getið í byrjun þessarar ræðu minnar, að því miður mundi hún verða líkræða yfir frv. um skuldaskilasjóð, en jafnvel þó að þetta frv. verði nú jarðsett, þá hefir það sína miklu þýðingu, að það kom fram. Það mun hafa þá þýðingu, að lánastofnanir munu fremur en annars fresta því að ganga að illa stæðum útvegsmönnum. Með flutningi þessa frv. er það a. m. k. ljóst, að stærsti flokkurinn í þinginu hefir tjáð þessu máli sitt óskipt fylgi. Og þó að stjórnarflokkarnir hafi ekki viljað taka tillit til þessa vilja Sjálfstfl. með sína 22 þús. kjósendur að baki sér, þá hefir þetta mál vakið mikla eftirtekt og hlotið fylgi allra útvegsmanna, og jafnvel stjórnarliðið hefir látið skína í gegnum sína framkomu í málinu, að það telji þurfa að sinna því á næsta þingi. Vegna þeirrar hreyfingar, sem komizt hefir á þetta mál við framkomu þessa frv., hefir fjöldi aðþrengdra útgerðarmanna fengið einskonar gálgafrest gagnvart sínum lánardrottnum.
En það mega stjórnarflokkarnir vita, að Sjálfstfl. mun halda þessu máli vakandi. Það mun verða rætt við þjóðina fyrir næsta þing og það mun reynast svo, að þessu máli verður fylgt eftir með svo miklum áhuga og miklu harðfylgi hjá þjóðinni, að framkvæmd þess verður ekki tafin lengur en til næsta þings.