14.12.1934
Neðri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (4166)
128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna
Ólafur Thors:
Ég þarf í raun og veru litlu við að bæta það, sem hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Snæf. hafa sagt um þetta mál. Ætla ég þess vegna ekki að ræða málið almennt, og ekki koma inn á það sjónarsvið, sem þeir hafa rætt málið á. Ég get tekið undir þeirra ræður frá orði til orðs, en vil þó ekki láta þetta mál verða afgr. svo hér á þingi, að ég segi ekki um það fáein orð, af því að ég álít það eitt þýðingarmesta mál þingsins. Ég lít á það að því leyti eins og báðir flokksbræður mínir, sem ég áðan nefndi, að ég fagna því, að þetta mál er komið fram á Alþingi, og ég veit, að allir, sem þar eiga hlut að máli, verða Sjálfstfl. þakklátir fyrir að hafa beitt sér fyrir því. Það er enginn vafi á, að það, að málið sé komið fram, leiðir til bráðra úrslita, þeim mönnum, sem hlut eiga að máli, til framdráttar og farsældar. En í sjálfu sér get ég vel unað við þá afgreiðslu málsins, sem fyrirhuguð er, ef hún aðeins væri með meiri menningarblæ en raun ber vitni um. Þetta nál. meiri hl. sjútvn. er einsdæmi en hitt, að fresta endanlegri afgreiðslu þessarar löggjafar til næsta þings, að fenginni þessari yfirlýsingu bankastjóranna, þarf út af fyrir sig ekki að leiða til neins skaðræðis, vegna þess, að úr því að frv., með því að vera lagt fram á Alþ., hefir leitt í ljós þann vilja þingsins að ráða fljótlega bót á þessum vandræðum útvegsmanna, og fyrst bankarnir lofa að taka það mikið til hugarfars Alþingis í þessu efni, að ganga ekki að útgerðarmönnum, þá hefir þegar áunnizt mikið í þessu efni. Og er sannfærður um, að sömu afleiðingar útvegsmönnum til framdráttar verða af þeim undirtektum, sem málið fær hér á þinginu, að því er snertir aðstöðu einstakra kaupsýslumanna í garð útvegsmanna. Það er enginn vafi á því, að allur fjöldinn af þeim mönnum, sem skuldakröfur eiga á útgerðarmenn munu, vegna þess að frv. er komið fram og vegna yfirlýsinga í sambandi við það, sjá sínum hag bezt borgið með því að ganga ekki að útgerðarmönnum. Þetta er réttlátt að viðurkenna.
Ég vil svo leiðrétta misskilning, sem fram kemur af hálfu meirihlutamanna sjútvn. í nál. þeirra, að þeir leggja of lítið upp úr þeirri hjálp, sem skuldaskilin munu veita útvegsmönnum. Það er, eins og samflokksmenn mínir hafa tekið fram, að þess þarf sérstaklega með að bæta fyrir útvegsmönnum með því að leita nýrra markaða, en eins og hv. þm. Snæf. tók fram, höfum við gert okkar till. um það, sem því miður er ekkert farið eftir. En hitt er staðreynd, sem ekki er nægilega viðurkennd við þessar umr., að ef útvegsmenn fá skuldaskil, fá þeir með því nýja og ákaflega mikið bætta aðstöðu til þess að starfrækja sinn atvinnurekstur með von um arðvænleg, útkomu, og það er vegna þess, að nú eins og ástandið er, er það háttur útvegsmanna, a. m. k. hér á Suðurlandi, að þeir fá í vertíðarbyrjun rekstrarlán. Margir hverjir hinir smærri útvegsmenn fá frá sex og upp í níu þús. kr. lán út á ófiskaðan afla, sem nemur um 30 kr. á skippund, sé miðað við 200 til 300 skippunda afla. Það er ætlazt til, að þeir verji þessu láni til þess að kaupa fyrir þarfir sínar í þágu síns atvinnurekstrar, en því er af mörgum varið til annars. Því er varið til þess að greiða gamla skuld, sem skuldareigandi vitanlega fagnar að fá greidda, en þeirri greiðslu fylgir sú kvöð, að hlutaðeigandi kaupsýslumaður veiti þessum manni, sem skuldina greiddi, nýtt lán, og það lán er í augum kaupsýslumannsins alveg í sömu áhættunni og fyrra lánið. Af þessu leiðir, að kaupsýslumaðurinn hækkar verðlagið á vörunni meira en þörf er á, ef staðgreiðsla ætti sér stað. Það verður því veigamesti þátturinn í afgreiðslu skuldaskilasjóðsins, að ef skuldaskil verða framkvæmd. geta útvegsmenn notað hið nýja rekstrarlán til þess að kaupa sínar notaþarfir í þágu atvinnurekstrarins með hagkvæmara verði en annars, af þeim eðlilegu ástæðum, að kaupsýslumaðurinn getur hækkað verðið á notaþörfunum þegar staðgreiðsla á sér stað. Ég hygg því, að þessi þáttur skuldaskilanna verði veigamesti þátturinn í viðreisn sjávarútvegsins, því að það vita allir, að ef þessir bátar fá aðstöðu til þess að kaupa öll sín veiðarfæri, beitu, olíu, salt o. fl., gegn staðgreiðslu, fá þeir þessar vörur fyrir 15—20% lægra verð en ella. Þá fara að breytast horfurnar með útveginn, frá að það var að verða vonlaust um, að hann gæfi arðvænlega útkomu, yfir í það, að líkur eru til, að hann gefi nokkurn hagnað. Þetta vildi ég láta koma skýrt fram áður en þessum umr. er lokið, svo að enginn misskilningur þurfi um það að vera. Að öðru leyti skal ég ekki gera frv. eða rökst. dagskrána að umræðuefni: það hafa mínir flokksbræður gert svo rækilega, að ég hefi engu þar við að bæta.