12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (4197)

53. mál, opinber ákærandi

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Hv. 11. landsk. lét þau orð falla viðvíkjandi frv. þessu, að endurskoðun réttarfarslöggjafarinnar væri svo mikið verk, að það væri ekki líklegt, að henni yrði lokið á fáum árum. En það kvað við annan tón hjá hv. 8. landsk. Hann áleit, að hægt væri að framkvæma hana á stuttum tíma. Hvorugur þessara hv. þm. hefir rétt fyrir sér. Það, sem rétt er í þessu máli, er að fara milliveginn.

Ég skal geta þess í sambandi við þetta frv., að þegar einkamálalöggjöfin verður tekin til meðferðar, þá er það ekki rétt hjá hv. 8. landsk., að hana megi taka sérstaklega. Það verður ekki hægt að komast hjá því að rannsaka um leið dómaskipunina. Það er tvímælalaust rangt, að hægt sé að taka meðferð einkamála út úr, án þess að allt sé athugað í heild.

Eins og ég hefi getið um áður, þá er þetta mál ekki meir aðkallandi en ýmislegt annað.

Það er ekki rétt hjá hv. 11. landsk., að það muni taka mörg ár að rannsaka réttarfarslöggjöfina. Því er þannig háttað, að nágrannaþjóðirnar hafa byggt upp réttarfarslöggjöf sína á undanförnum árum. Við getum notfært okkur reynslu þeirra.

Það hefir verið unnið að því að rannsaka meðferð einkamála, og mun því verða lokið seinni hluta vetrar. En ég álít það rangt, að einn maður gangi frá því máli, án þess að aðrir komi þar nálægt. Ég álít t. d. ekki rétt að ganga framhjá Félagi málflutningsmanna.

Það, sem hv. 8. landsk. sagði, að hægt væri að leggja málið nú fyrir Alþ., er rangt. Það er ekki hægt að taka það þannig út úr.

Hv. 8. landsk. spurðist fyrir um það, hvað hefði verið gert í refsilöggjöfinni. Hún hefir nú verið til athugunar tvö undanfarin ár. En þeim undirbúningi er ekki lokið enn. Strax og ég tók við starfi mínu sem dómsmrh., bauð ég að hraða undirbúningi málsins. Ég get sagt það, að það hefir verið unnið kappsamlega að undirbúningi refsilöggjafarinnar. Það er því von til þess, að hægt verði að leggja fyrir næsta þing frv. til l. um breyt. á refsilöggjöfinni.

Eins og ég gat um í upphafi, þá þarf málið ekki eins langan undirbúning og hv. 11. landsk. álítur, en þó frekari rannsókn en hv. 8. landsk. vill vera láta.

Það, sem rétt er í þessu máli, er það, að skipa 3 manna nefnd til að undirbúa málið. Þá fæst í einni heild samræmi í meðferð opinberra mála og einkamála, og þá mætti um leið taka dómaskipunina til athugunar. Þá mætti taka til fyrirmyndar ýms atriði úr löggjöfinni í norðurhluta Svíþjóðar, og öðrum löndum, þar sem strjálbýli er. En ef nú væri gengið frá einkamálalöggjöfinni, þarf e. t. v. að breyta henni fljótt aftur.

Enn er eitt atriði, sem þarf að athuga, og það er, hvort hinn opinberi ákærandi á aðeins að flytja mál fyrir hæstarétti, eða fylgjast líka með málunum frá upphafi fyrir undirrétti. Þetta þarf að taka til athugunar, en það er ekki hægt nema málið sé allt tekið um leið. En það eru nægileg rök fyrir því að fresta málinu, að það er ekki meir aðkallandi en annað. Þetta á að koma til athugunar, þegar þessi mál eru afgr. í heild.

Ég vænti þess, að hv. Alþ. fallist á að skipa 3 manna n. til að athuga málið. Það hefir þegar verið varið fé til að rannsaka þessi mál. Erlendi, hefir verið varið stórfé til þess. Hjá Dönum hafa t. d. 4 nefndir haft málið til annsóknar. Ég býst við, að Alþ. fallist á það, að skipa 3 manna n. til að athuga þessi mál. Það hefði lítinn kostnað í för með sér í samanburði við það, sem aðrar þjóðir hafa varið til þessa.