15.11.1934
Neðri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í C-deild Alþingistíðinda. (4269)

115. mál, niðurlagning prestlaunasjóðs

Jónas Guðmundsson:

Þeir hafa nú talað hver um annan þveran sýslumenn og hreppstjórar til þess að reyna að komast hjá þeirri skyldu, sem þeim er lögð á herðar með þessu frv., að innheimta þetta gjald. Allir sjá, að það er rangt, sem hv. þm. V.-Sk. hélt fram, að hér væri um eitthvert sérstakt stefnumál að ræða. Hér er aðeins um það að ræða, hvort þessir innheimtumenn, sýslumenn og hreppstjórar, eigi að innheimta samskonar gjöld í ríkissjóð og þeir hafa nú með höndum. Þeir hafa nú innheimtu á ellistyrktarsjóðsgjaldi, sem er hliðstætt því gjaldi, sem hér er um að ræða, tekju- og eignarskatti, sem nær til flestra manna, sem komnir eru yfir fermingaraldur, fasteignaskatti o. fl. svipuðum gjöldum. Hér er aðeins um eitt gjald að ræða, sem falið er sóknarnefndunum, þar sem mannaskipti verða í hvert skipti, sem kosið er í n., og trassaskapur og óreiða er á þessari innheimtu. Það er sannleikur, þó hv. þm. Borgf. vilji ekki kannast við það, að hreppstjórar trassa fram úr öllu hófi að taka lögtaki þessi gjöld. Þeim eru sendar langar skrár yfir gjöld, sem ekki greiðast, kirkjugjöld, prestlaunasjóðsgjöld og önnur gjöld, en svo er trassað ár eftir ár að innheimta þau. Um þetta get ég borið, því ég hefi lengi verið gjaldkeri í sóknarnefnd. Það er skökk stefna hjá hv. þm. V.-Sk., að það eigi að undanþiggja sýslumenn innheimtu þessara gjalda, því einmitt þar er betur búið að þeim, þar sem þeir eiga að fá 6% í innheimtulaun, og ég þykist vita, að enginn sýslumaður á landinu muni ekki láta hreppstjórana fá öll þessi innheimtulaun af þeim gjöldum, sem þeir innheimta. Þessa stefnu hv. þm. V.-Sk. vil ég því reka heim sem gersamlega ómögulega til þess að framfylgja.

Hv. þm. Borgf. sagðist ekki skilja, hvernig ég kæmist að þeirri niðurstöðu, að hægara yrði að halda við kirkjum og kirkjugörðum, ef þessi breyt. næði fram að ganga. Ástandið í þessum efnum er þannig, að ekki næst inn nema tiltölulega lítill hluti af sóknargjöldunum án lögtaks. Þá er sent til sýslumanna, sem svo senda til hreppstjóranna til þess að taka lögtak, sem þeir trassa fram úr öllu hófi. Afleiðingin verður sú, að ekki næst nema lítill hluti af þessum tekjum, en prófastar ganga eftir því að fá prestlaunasjóðsgjaldið, sem þeir eiga að standa skil á til biskups, greitt að fullu, þó ekki sé nærri lokið innheimtu þess. Af þessu stafar það, að lítið sem ekkert er eftir til þess að verja til viðhalds kirkjum og kirkjugörðum í viðkomandi sóknum. Á þennan hátt er það, sem ég tel, að með því að létta þessari innheimtu af sóknarnefndunum geti þær haft möguleika til þess að verja því fé, sem þær sjálfar geta innheimt, til þess að halda við kirkjum og kirkjugörðum heima hjá sér. Það er því rangt, að hér sé ekkert ómak tekið af sóknarnefndunum, því það er mikið, og ég tel sjálfsagt, að því sé af þeim létt. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta að sinni.