15.11.1934
Neðri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í C-deild Alþingistíðinda. (4276)
115. mál, niðurlagning prestlaunasjóðs
Magnús Torfason:
Ég tel þetta mál nokkurn veginn útrætt, og stend þess vegna ekki upp til þess að tala um málið, heldur til þess að bera af mér sakir. Helmingur Bændafl. í þessari hv. d. — og sjálfsagt „betri“ helmingurinn — hefir talið sér skylt að ráðast á mig með persónulegum aðdróttunum, og ég vænti þess, að hv. þm. líti svo á, að ég hafi rétt til þess að bera af mér blak. Honum fórust þannig orð, að sýslumenn hefðu kúgað stj. eða fengið hana til þess að bæta við skrifstofufé sitt í algerðu heimildarleysi. Að því er heimildarleysi snertir er þetta vitanlega ekki á ábyrgð sýslumannanna og bæjarfógetanna, og ég býst við, að engir þeirra hafi vitað um það, hvort sú upphæð, sem til þeirra hefir farið, hafi verið nálægt því, sem veitt var í fjárl. eða ekki. En um það atriði, að ég hafi verið fingralangur í skrifstofufé, eða að í mínar hendur hafi komið illa fengið skrifstofufé, er það að segja, að ég held, að það geti ekki vel staðizt. þegur ég sótti um Árnessýslu, var skrifstofufé 5 þús. þar, og ég játa það, að ég sótti um sýsluna vegna þess, að ég leit svo á, að með 5 þús. kr. í skrifstofufé væri það tryggt, að ég fengi a. m. k. þau laun, sem embættinu fylgdu. En hvað skeður? Þegar sparsemin var sem mest hér á Alþ., sællar minningar, þá var skrifstofufé sýslumanna fært talsvert niður, og ég varð þá fyrir barðinu á þeirri niðurfærslu. Skrifstofufé mitt var þá fært úr 5 þús. kr. niður í 2880 kr. Sjálfur borgaði ég föstum skrifara 3600 kr., og varð því að borga honum 720 kr. úr eigin vasa, fyrir utan það, að ég varð að gefa ríkinu húsaleigu, hita og ljós, og svo allt, sem skrifstofu heyrði til, svo sem bækur, prentun og þess háttar. Ég skal játa það, að ég fór þá til forsrh. og sagði honum frá því hreinskilnislega, að ég mundi gera þetta atriði að umtalsefni hér á Alþ., en við það batnaði þetta nokkuð. Síðan hefir skrifstofufé færzt talsvert upp, og ég hefi notið þess eins og aðrir. En ef hv. þm., sem hefir verið endurskoðari landsreikningsins og er sjálfsagt kunnugur þessum málum, vill kynna sér þetta betur, þá mun hann sjá það á reikningum mínum, að ég hefi aldrei borgað minna en 1600 kr. á ári fram yfir það, sem ég hefi fengið. (HannJ: Þeir reikningar liggja ekki frammi). Þeir eru í stjórnarráðinu, það er víst. Ég vona nú, að hv. þdm. sjái, að þessi árás frá hv. þm. V.-Húnv. hefir verið alveg að ófyrirsynju. Hann var að tala eitthvað um bókfærslu, en ég skal ekki svara neinu um það, þó að til þess gæti verið ástæða. Ég skal lýsa því yfir, að ég tek þetta ekki illa upp fyrir þessum hv. flokksmanni mínum. Ég þekki hann, og við þekkjum hann — allir.