23.11.1934
Neðri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í C-deild Alþingistíðinda. (4312)
20. mál, ríkisútgáfa skólabóka
Sigurður Einarsson [óyfirl]:
Hv. 5. þm. Reykv. talaði hér daglangt í gær, til þess að svara hv. frsm. meiri hl. Er hann aftur í dag hafði talað, mér liggur við að segja daglangt, varð mér hvarflað út, undir ræðu hans. Mér er sagt, að á meðan ég var úti hafi hv. þm. tekið til athugunar ræðu mín, í gær. Sessunautur minn skráði niður fyrir mig nokkur ranghermi hv. þm. út af ræðu minni, og vil ég taka þau til athugunar.
Það er rangt hjá hv. þm., að ég hafi sagt, að samningar væru milli kennara um skipti á bókum. Ég sagði það ekki, heldur að nokkurt reiptog væri milli sumra eldri kennara um að nota ekki nema vissar bækur, og réði þar þá stundum vinskapur við útgefendur. Ég hefi aldrei gefið í skyn í þessu sambandi, að kennarar hefðu baksamninga um bókakaup. Ég sagði hinsvegar, að sá hugsunarháttur kæmi fram í þessu, sem tæki eigi tillit til aðstæðna heimilanna, þegar börnin flytjast t. d. milli deilda. Ég hefi aldrei sagt, að foreldrar ættu að ráða, hvaða bækur börnin notuðu. Ég sagði hinsvegar, að það væru eigi þægindi kennara eða bókaútgefenda, sem taka bæri tillit til í þessu efni, heldur bæri að taka tillit til þess, hvaða bækur skólinn þyrfti að hafa, og um leið að gera foreldrum eins þægilegt fyrir og unnt væri.
Það má vera að hv. 5. þm. Reykv. þyki það undarlegt, að börnin séu bókalaus. Hann hefir verið svo lengi í skólanefnd, en jafnan sett kíkinn fyrir blinda augað, eins og Nelson forðum. En ég get nefnt honum dæmi þess, að kennarar hafa orðið að kaupa bækurnar sjálfir, svo að börnin gætu eignazt þær. Það er kennari, sem nýtur lítillar vináttu hv. 5. þm. Reykv., og kannske einmitt fyrir það.
Þá sagði hv. þm., að ég liti á skólaskylduna sem kvöð, og talaði mikið um, hve dýrt hefði verið að afla sér menntunar áður fyrr. Það færi vel á því fyrir hv. þm. að gera sér það ljóst, að það er sjálfs sín vegna, sem þjóðfélagið menntar börnin, en ekki gert fyrir skrílinn eða fátæklingana.
Hv. þm. talar um matgjafirnar í skólunum í þessu sambandi og segir, að nú séu heimtaðar skólabækur, en næst muni svo koma krafa um skó og fatnað. Finnst hv. þm. það eitthvað ægileg tilhugsun, þótt beðið sé um fatnað fyrir klæðlaus börn? Það er viðurkennd regla og þannig alstaðar á litið, að þess starfs sé af börnunum krafizt, að þjóðfélaginu beri skylda til að sjá um, að líðan þeirra sé sómasamleg.
Hv. þm. talaði um, að prentun fyrir ríkið hafi verið nokkurskonar styrkur til prentsmiðjanna í Reykjavík, og svo ætti það að vera áfram. Þetta nær vitanlega ekki nokkurri átt sem rök gegn þessu máli. Þótt prentsmiðjurnar þurfi styrk, þá er auðséð, að ríkið setur ekki tekið tillit til þess, þegar um þetta er að ræða. Það verður að haga þessu eins og bezt er og hagkvæmast fyrir ríkið, og ef beztur árangur næst með ríkisútgáfu, þá ber að setja hana á stofn.
Það fór hrollur um mig, er hv. þm. talaði um það með ugg og kvíða, hversu mikill vöxtur væri í fyrirtækjum ríkisins, svo sem prentsmiðju þess og bókbandi. Að hugsa sér það, að kvíða fyrir því, þótt fyrirtæki ríkisins blessist, og telja það eitur og drep fyrir þjóðina. Það verður ekki annað sagt en það sé gæfa og blessun fyrir þjóðina. — Spádómarnir um græðgi ríkisprentsmiðjunnar í sambandi við þetta er smekkleysa, og að frv. sé fram borið til þess að verða vatn á hennar myllu, er vindhögg út í loftið.