24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (4329)

20. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Frsm. minni hl. (Pétur Halldórsson) [óyfirl.]:

Ég sé, að hæstv. forseti er þolinmóður við aðra, þótt hann gæfi mér í skyn áðan, að hann óskaði eftir að ég færi að ljúka máli mínu.

Ég get ómögulega látið hjá líða að segja nokkur orð til viðbótar um þetta mál, einkum eftir að hafa heyrt þær upplýsingar, sem hv. 11. landsk. gaf um misbeitingu á notkun kennslubókar í Íslandssögu í sumum skólum landsins. Nú má það öllum ljóst vera, úr því að slíkt getur átt sér stað þrátt fyrir það, að úr mörgum öðrum kennslubókum er að velja, hversu margföld hættan verður á hinu sama, ef um aðeins eina ríkis-viðurkennda og ríkis-útgefnu kennslubók er að ræða í hverri námsgrein, ef illa tekst til. Og hvenær er trygging fyrir því, að ekki geti tekizt illa til? Þótt hv. núv. fræðslumálastjóri geri lítið úr þessari hættu og ég fyrir mitt leyti treysti honum til að gæta hlutleysis í þessum efnum, þá er það engin trygging, því að ekki verður hann eilífur í embætti sínu, og getur jafnvel verið, að hann verði mjög skammær í því. En mér virðist einmitt hv. fræðslumálastjóri gera mikið til þess að láta svo líta út, að afstaðan til þessa frv. sé afstaða til þess, hvort hv. þdm. hafi trú á honum sjálfum eða ekki. (ÁÁ: Ég hefi aldrei gefið neitt tilefni til þessara ummæla). Nei, en hann hefir sagt, að hann hefði sjálfur trú á þessu, og upp á þá trú eiga svo hv. þdm. að fella úrskurð.

Hv. fræðslumálastjóri gerir ennfremur mikið úr því, að kennarar landsins hafi trú á þessu máli. Ég hefi þó heyrt raddir koma fram frá kennurum, og það opinberlega, sem benda í allt aðra átt. Og það þori ég að fullyrða, að það er alveg vonlaust um, að allir kennarar verði nokkurn tíma ánægðir með það, hvernig tekst um val og frágang skólabóka hinnar væntanlegu ríkisútgáfu. Ávallt hlýtur að verða mikill skoðanamunur um efnisval og framsetningu í þessum bókum. Það skiptir oft ekki minna máli, hvernig eitthvað er sagt, heldur en hvað er sagt, og með framsetningunni einni er hægt að hafa margvísleg áhrif á nemendur og skoðanir þeirra. Og það verður einmitt hálfu örðugra, þegar aðeins ein kennslubók er gefin út í hverri námsgrein, að gera bækurnar svo úr garði, að þær veki ekki andúð og tortryggni fleiri eða færri foreldra og kennara.

Þegar lítið er á þá hættu, sem hér vofir yfir og hv. 11. landsk. kom með svo skýrt dæmi um, þá verður kostnaðaratriðið í raun og veru aukaatriði, og eins það, hvar bækurnar eru prentaðar eða bundnar. Hv. fræðslumálastjóri var að tala um, að það hefði þroskavænleg áhrif á nemendur að fá kennslubækur, sem betur væru úr garði gerðar að ytra frágangi en tíðkazt hefði. Ég skal ekki mótmæla þessu, en vil aðeins benda honum á það, að hætt er við, að sá bætti frágangur kosti peninga.

Ég veit það, að sósíalistar fylgja þessu máli fast fram, enda er hér verið að framkvæma stefnumál þeirra, þjóðnýtinguna. Og ég þykist þess líka fullviss, að það sé einmitt hinn sósíalistiski angi kennarastéttarinnar, sem stendur að frv., en ekki hinir.

Það er undir hv. n. komið, hvort nokkurt tillit verður tekið til þessu, — en er ekki hér lagt út á hála, hættulega og varasama braut? Ég veit, að þetta síðasta, sem ég hefi nú drepið á, er stórhætta, þó ég hafi ekki í fyrstu ræðu minni talið það með aðalatriðum, en það getur orðið eitt erfiðasta spursmálið á sínum tíma í sambandi við ríkisútgáfu skólabóka.