08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (4342)

20. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Sigurður Einarsson [óyfirl.]:

Það má alveg taka undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að brtt. á þskj. 673 eru hógværlega orðaðar og ekki ósnotrar áferðar, en þó að svo sé, að þær breyti ekki verulega því, sem vakir fyrir flm. þessa frv., þá eru sumar þeirra þess eðlis, að frv. verður ekki nema lítil mynd af því, sem ætlazt var til, ef þær verða samþ. Skal ég sérstaklega nefna 1. brtt.: „Nú býðst útgefandi til að taka að sér útgáfu löggiltrar kennslubókar, og skal boði hans þá tekið, ef hann fullnægir skilyrðum fræðslumálastjóra um frágang bókar og verð.“ Það er undarlegt, að fræðslumálastjóri skuli hér eiga að meta skilyrðin, en ekki útgáfustjórn. Þetta er dálítið einkennilegt, ef miðað er við, að frv. eigi fram að ganga um ríkisútgáfu skólabóka. Það er heldur óviðfelldið, að þetta vald skuli eiga að taka af útgáfustjórninni og fræðslumálastjóri einn að skera úr um þessi tilboð. Er algerlega ástæðulaust, að það sé ekki á valdi útgáfustjórnar sameiginlega, þar sem fræðslumálastjóri á sæti, hvort taka skuli tilboðunum eða ekki. Ég vil því leyfa mér að bera fram svo hljóðandi skrifl. brtt. um. að brtt. á þskj. 673 orðist svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Við 1. Tillögu orðist svo: Nú býðst útgefandi til að taka að sér útgáfu löggiltrar kennslubókar, og er þá heimilt að taka boði hans, ef hann fullnægir skilyrðum útgáfustjórnar um frágang bókar ok verð enda fari um sölu hennar eftir fyrirmælum 5. gr.

En í frvgr. er tekið fram, hvernig og hvenær skuli tekið til útgáfu á þeim bókum, sem eru að verða uppseldar.

Um aðrar brtt. á þskj. 673 skal ég taka þetta fram í stuttu máli, að það virðist fullkomlega ástæðulaust að binda svo fast í lögunum, að útgáfustjórn skuli leita tilboða um prentun og band bóka og skuli hagkvæmasta tilboði tekið. Það þarf ekki annað en líta á frv. sjálft til að sjá, að prenti sjálft bækur og bindi, heldur hvaða skólabækur skuli prentaðar og bundnar í hvert sinn. Það liggur því í hlutarins eðli, að útgáfustjórinn muni leita tilboða um prentun og band hverrar bókar, þó ekki sé farið að fyrirskipa það með lögum, sem er aðeins til að bjóða heim lögbrjótum, þ. e. a. s. gefa undir fótinn þeim fyrirtækjum, sem við vitum, að eru til og aldrei setja sig úr færi að undirbjóða keppinauta sína.

Viðvíkjandi 3. brtt. á þskj. 673. við 5. gr. frv., um sölulaun, þá sé ég ekkert á móti því, að sá, sem tekur á móti bókunum og greiðir við móttöku, fái ívilnun, eða útgáfustjórn sé heimilað að ætla honum hærri þóknun en þeim, sem tekur bækurnar í umboðssölu, því þetta er hagur fyrir báða. Og úr því meiri hl. samþykkti 20% sölulaun í umboðssölu, þá sé ég ekkert á móti því, að gefin séu 25% gegn staðgreiðslu.

Það er alveg rétt hjá hv. 5. þm. Reykv., að ef fara á út í það ýtrasta, hvað séu skólanauðsynjar, þá mætti með málfræðilegu harðfylgi og kaupmennskubrögðum láta það ná yfir allt, sem hann taldi upp. (PHalld: Það þarf ekki til). Jú, það þarf til. En ég get fullvissað hann um, að með orðinu „skólanauðsynjar“ vakir ekkert annað en það, sem ég nefndi í fyrri ræðu minni, skrifbækur, teiknipappír o. þ. h. Skal ég þá koma að því í þessu sambandi, sem nokkru máli skiptir og vafalaust er öllum kunnugt, sem fást við kennslu og skólahald, hve það er til stórra baga fyrir stofnun eins og t. d. kennaraskólann, að hvergi er til safn kennsluáhalda, sem er mjög nauðsynlegur hlutur og er einn liður í kennslu erlendra skóla, að kennaraefnin kynnist nauðsynlegum skólaáhöldum og nýjungum. En því verður ekki komið við nema þessir hlutir séu á einum stað eða öll fræðslutæki, sem notuð eru. Ég býst við, að það sé m. a. þetta, sem vakir fyrir flm. þessa frv., að ef ríkisútgáfan færi að hafa birgðir af nauðsynlegustu tækjum og skólagögnum, þá verði auðvelt að koma upp slíku skólagagnasafni, sem skortir hér mjög tilfinnanlega. Ég skil vel, að hv. 5. þm. Reykv. sér hér strandhögg inn á atvinnurétt þeirra manna, sem fengizt hafa við viðskipti og verzlun með þessar nauðsynjar, en sé ekki, að hér geti verið um svo mikinn gróða að ræða, að hann geti ekki fallizt á, ef hann athugar þetta mál betur, að tilvinnandi er að fórna þeim gróða og að ríkisútgáfan fái þessa verzlun, því það létti undir með framsýnni stjórn að koma upp skólagagnasafni, sem er mikilsverður liður í uppfræðslu kennara.

5. brtt., við 8. gr. frv. — sem hv. þm. gerði allýtarlega grein fyrir —, fer fram á, eftir því sem ég fæ bezt séð, hlunnindi til handa þeim mönnum, sem nú eru eigendur skólabóka. Mun hv. þm. vafalaust sjá við nánari athugun, að þetta eru ekki allt sanngjarnar kröfur, enda fyrir því séð í frv., að ekki sé gengið á rétt eigendanna; er þeim ætlaður góður tími til að losna við birgðirnar. Það er rétt, að alltaf verður eitthvað eftir óselt; eru það oft gömul eintök, og sum hver meira og minna skemmd af geymslu, sem eru þá orðin útgefanda verðlaus, og mundu verða jafnt hvort ríkisútgáfa væri eða ekki, því engin trygging er fyrir því með núv. fyrirkomulagi, að ekki gefi einhver annar út bók í stað þessarar. En nú er ekki nóg með það, að þessi brtt. fari fram á, að ríkisútgáfan kaupi óseld eintök, heldur líka myndamót o. fl., er tilheyrir útgáfunni. Ég get hugsað mér, að þær myndir væru ekki að öllu leyti æskilegar í nýja útgáfu, sumar úreltar, og e. t. v. hægt að fá önnur myndamót jafnheppileg ódýrari. En með þessu er verið að binda ríkisútgáfunni útgjaldabagga, sem gæti orðið alltilfinnanlegur, en lítil eða engin not yrðu af. Og eins og ég gat um áðan, er nú enginn, sem getur hindrað annan í að gefa út skólabækur í sömu grein, og hver verður að sjá um sig. Þessi vernd, sem hér er farið fram á til handa bókaútgefendum, er því alls ekki til eins og nú standa sakir. — eða hverjum er skylt að kaupa nú allt, sem tilheyrir útgáfunni, ef annar gefur kennslubókina út nú? Þetta er ekki sambærilegt dæmi við tóbakseinkasöluna, eins og hv. þm. Reykv. vildi halda fram. Þegar tóbakseinkasölunni var gert að kaupa tóbaksbirgðir einstakra kaupmanna, þá geri ég ráð fyrir, að þar hafi verið um að ræða fullgilda verzlunarvöru og nothæfa. En þessar kennslubækur eru úreltar og ekki fullgild verzlunarvara, þó þær séu seljanlegar meðan fólk nær ekki í aðrar bækur, en náttúrlega eru ekki allar bækur úreltar, þó þær séu uppseldar. En ný bók þarf jafnan að vera handbær þegar þær eldri þrjóta, og verður það undir mati væntanlegrar útgáfustjórnar, hvenær efna skal til nýrrar bókaútgáfu, eða hvort endurprenta skuli þá gömlu, ef um það er að ræða, að hún sé eins hagkvæm. En náttúrlega er það hagnaður fyrir bókaútgefendur að vátryggja á þennan hátt vöru sína, sem þeim hefir aldrei komið til hugar að geta selt.

Um brtt. hefi ég þá sagt þetta: Við 1. brtt. á þskj. 673 hefi ég leyft mér að bera fram skrifl. brtt. Um 2. brtt. hefi ég leitt rök að því, að þar er um nokkra handjárnapólitík að ræða á útgáfustjórnina, sem er óþörf og ekkert tilefni er til. Um 3. brtt., að ég álít hana réttmæta og meinlitla. Um 4. brtt., að hún er sprottin af óþörfum ótta við, að formenn skólanefnda og útgáfustjórn kunni að misnota hana, og um 5. brtt., að hún er verndarráðstöfun um hagsmuni útgefenda, sem búið er að ganga tryggilega og rækilega frá í frv. sjálfu, eða 8. gr. þess, eins og hún liggur fyrir. Hún er ekki einungis óþörf að því leyti, heldur líka til óþurftar á þann hátt, að hún rýrir fjárhagslega getu ríkisútgáfunnar og bítur úr henni bakfiskinn. Brtt. á þskj. 673 eru ekki hugsaðar út frá sjónarmiði barnanna, sem eiga að bera bækurnar, ekki frá sjónarmiði foreldranna, sem eiga að kaupa þær, ekki eru þær heldur hugsaður út frá sjónarmiði skólanna eða kennaranna, sem eiga að nota bækurnar við uppfræðsluna, heldur eru þær hugsuðar, samdar og bornar fram frá sjónarmiði þeirra manna, sem gefa út kennslubækur.