08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í C-deild Alþingistíðinda. (4343)

20. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Gunnar Thoroddsen:

Við 2. umr. þessa máls féllu þau ummæli frá hv. frsm. meiri hl., menntmn., að hér á landi hefðu ekki enn komið umkvartanir um, að kennslubækur væru samdar af hlutdrægni. (PZ: Löggiltar kennslubækur). Ég mótmælti þessu þá þegar, en gat þess, til að tefja ekki umr., að ég mundi fresta til 3. umr. að færa rök fyrir þessum orðum mínum. Ég hafði hugsað mér að rökstyðja nokkuð þessi ummæli mín nú við þessa umr., og þykir mér því leitt, að hv. frsm. er ekki á fundi, en við því verður víst ekki gert, því að ég býst ekki við, að hæstv. forseti vilji fresta umr. þangað til frsm. er viðstaddur.

Ég minntist við 2. umr. sérstaklega á eina bók, sem hefði þann ágalla að vera hlutdræg, og það er „Íslendingasaga“ eftir Arnór Sigurjónsson. Ég skal geta þess, að hún er að vísu ekki löggilt, af þeirri einföldu ástæðu, að hún er kennd við héraðs- eða unglingaskóla, og þar er engin kennslubók löggilt. En hún er gefin út árið 1930 með ríkisstyrk, að ég ætla 2 þús. kr., og kennd við marga unglingaskóla: mér er a. m. k. kunnugt um tvo skóla, skólana á Laugum og Laugarvatni. Skólastjórinn á Laugarvatni, hv. 2. þm. Árn., er hér viðstaddur, og vænti ég að hann beri á móti þessu, ef ekki er rétt með farið. — Ég vil benda á, að fyrst bók þessi er kennd a. m. k. við tvo héraðsskóla, og jafnvel fleiri, og gefin út með ríkisstyrk, þá er óhæfa, að slík bók sé hlutdræg í frásögn; og það er sérstök ástæða til að athuga þetta í sambandi við umr. um það, hvernig hagað skuli útgáfu á skólabókum.

En það er önnur bók, sem ég ætla einnig að minnast á og stendur eins á um. Það er „Þjóðskipulag Íslendinga“ eftir Benedikt Björnsson kennara á Húsavík. Hún er líka gefin út með ríkisstyrk, en mér hefir ekki tekizt að fá upplýsingar um, hvað sá styrkur var hár. Þessi bók er líka kennd við þá tvo héraðsskóla, sem ég nefndi áðan, og sennilega í fleiri hliðstæðum skólum. Það er einkum tvennt, sem einkennir þessa bók. Annað er það, hve hrúgað er saman miklu af pólitískri hlutdrægni og hinsvegar sægur af stórum villum og áberandi, svo algerlega er óhæfilegt, að hún sé kennd í skólum og skuli hafa verið styrkt af ríkisfé.

Skal ég þá víkja að nokkrum atriðum og leysa hér upp úr bókinni til að sýna, að ég fer ekki með staðlausa stafi. Einn aðalkaflinn í bókinni. VI. kafli, er nefndur „Þjóðarhagir“. Er þar farið út í að ræða stjórnmálastefnur þær, sem ríki hér á landi; það er talað um þrjár aðalstefnur, íhaldsstefnu, jafnaðarstefnu og samvinnustefnu, og eiga þetta að vera stefnur þriggja aðalflokkanna, Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl., en öll lýsingin, sem höfundurinn vill láta, vera af þessum 3 flokkum, er lituð grófri pólitík. — Þegar höf. lýsir íhaldsstefnunni, lætur hann nægja fáeinar línur, eða ½ bls.: þegar hann lýsir jafnaðarmönnum, notar hann 1 bls., en þegar hann lýsir framsókn eða samvinnustefnunni, notar hann 1½—2. Þetta er nú bara forsmekkurinn af hlutdrægninni, sem kemur betur fram í öðru, og skal ég nú lesa nokkrar línur til að sýna það enn betur — með leyfi hæstv. forseta.

Á bls. 89 lýsir hann íhaldsstefnunni þannig: „Íhaldsmenn láta sér hægt um stórbreytingar í skipulagsmálum. Þeir óttast röskun og rótleysi í þjóðlífinu, ef niður skal rífa það, er stórmálum skiptir, og nýtt á að byggja á rústum þess, er lengi hafði staðið. Þeir vilja síga hægt í áttina fram og þreifa fyrir sér í hverju spori. Þeir vilja engin verzlunarhöft, en halda því fram, að frjáls samkeppni eigi að njóta sín með hlífðarlausu kapphlaupi með takmörkunum sem allra minnstum. Með þessum hætti nýtur einkaframtakið sín bezt, segja þeir, jafnvel þótt athafnir undir þessum skilyrðum verði stundum skipulagslaust fálm og brall, er mistakast og valda tjóni (gjaldþrot, bankahrun).“

Ég vil nú aðeins bera það undir dóm hv. þdm., hvort þeir álíta rétt að hafa slíkan dóm um pólitíska stefnu í kennslubók, en ekki fara fleiri orðum um það, heldur ríkja að því, er höf. segir um jafnaðarmenn, á bls. 89, og ætla ég, að hv. Alþflm. geti borið um, hvort gefin sé rétt lýsing á skoðun þeirra eða ekki:

„Jafnaðarmenn telja allt þjóðskipulag vorra tíma gallað og máttvana til almenningsheilla, og þeir, sem lengst ganga, telja grundvöll þess, eignarrétt einstaklingsins, óhæfilegan“. — Ég hefði nú haldið, að allir jafnaðarmenn teldu þennan grundvöll — eignarrétt einstaklingsins — óhæfilegan, en höf. er á annari skoðun. Svo lýsir hann þessu nánar á bls. 90 og segir svo: „Margt hefir þessum mönnum tekizt að ráða til bóta í einstökum atriðum. En reynslan sýnir, að lítið hefir unnizt á í heild og að kenningin sé hugsjón, sem torvelt muni að framkvæma“. — Í þessu felst ákveðinn dómur og andvígur stefnunni.

Ég skal þá víkja að samvinnustefnunni; um hana er langt mál og skrum mikið. Það er ekki fyrst og fremst dómur um stefnuna, heldur almennt lof, sem gæti átt við alla stjórnmálaflokka. Lýsir höf. fyrst höfuðatriðum í stefnu samvinnumanna, en segir síðan, bls. 92: „Þeir vilja setja á starfsemi sína lýðstjórnarblæ og þegnskaparsnið, svo að öll starfsemin verði einstaklingunum uppeldi þeirra og þroskalind til efnalegs og andlegs sjálfstæðis, án þess þó að einkaframtakið lamist. Þeir vilja stofna sjóði til tryggingar og til rekstrar framkvæmdanna, svo að þær standi fjárhagslega á eigin fótum.“ — Svo kemur niðurlagið: „Þeir vilja láta auðmagnið verða þjón almennra hagsælda, en ekki leiksopp einstaklinga. Þeir trúa á lífið og vaxtarmátt þess. Þeir vilja þróun, en ekki byltingu.“

Þetta á sérstaklega við samvinnustefnuna! „Þeir trúa á lífið og vaxtarmátt þess!“ — Ég held, að ég þurfi ekki að fara fleiri orðum um þetta til að sýna, hve óhæfileg hlutdrægni kemur fram í þessum lýsingum á stjórnmálastefnunum, og það má furðulegt heita, að svona bók skuli vera kennd í nokkrum skóla. — Höfundurinn minnist á kaupfélögin og Sambandið og lýsir hag þeirra, og um þau farast honum orð á þessa leið, bls. 93:

„Kaupfélög hér á landi hafa því nær öll á hendi bæði sölu innlendra afurða og útlendra vara. Hafa þau stofnað með sér samtök innbyrðis, sem nefnist Samband ísl. samvinnufélaga og hefir fulltrúa og afgreiðslu í Bretlandi (Leith), Þýzkalandi (Hamborg) og Danmörku (Kaupmannahöfn).“

Það er ekki verið að minnast t. d. á sendiherra Íslendinga í Kaupmannhöfn eða fiskifulltrúann á Spáni. Nei, það er eingöngu minnzt á sendiherra Sambandsins.

Ég skal þá, til þess að tefja tímann ekki um of, víkja frá þeirri pólitísku hlutdrægni, sem kemur fram í þessari bók, en mun nú sýna fram á beinar villur, sem í henni eru, og það eitt út af fyrir sig ætti að vera nægilegt til þess, að hún væri ekki notuð til kennslu í nokkrum skóla landsins.

Um eignarréttinn segir svo á bls. 9: „Eignarrétturinn er fólginn í því, að einstaklingurinn má eignast verðmæti á þrennan hátt : 1) að erfðum, 2) að gjöf og 3) með kaupi.“ Hér er það talið upp, hvernig eignarrétturinn stofnast. Það sér nú hver maður, hversu mjög þessari upptalningu er áfátt. Eftir þessu geta menn t. d. ekki öðlazt eignarrétt með því, sem kallað er nám eða taka, t. d. ef maður dregur fisk úr sjó.

Á bls. 10 segir svo: „Hinsvegar leyfist ekki heimskuleg og tilgangslaus eyðing eigin verðmæta, t. d. að brenna hús, þó að eigi stafi af því almenn hætta, eða að kasta peningum í sjóinn.“ — Ég veit engin lagaákvæði, sem banna mönnum að kasta peningum í sjóinn. Þetta er bara vitleysa.

Þá skal ég víkja að því, sem sýnir greinilega fáfræði þessa höfundar, þegar hann er að tala um löggjöfina. Hann segir á bls. 65:

„Sektir eru dæmdar þeim, sem brot fremja á lögum um almannaheill, án þess að persónuréttur nokkurs manns sé skertur með brotinu, og ganga sektir allar til almenningsþarfa á einhvern hátt. ...... Sú þegnskylda hvílir á hverjum manni að ljósta upp brotum.“

Ég skal benda á það, að ef einhver rekur öðrum löðrung, þá er það brot á persónurétti mannsins, og geta legið sektir við því broti, en samkv. meiningu höfundar liggja ekki sektir við, ef um skerðingu á persónurétti er að ræða. Eins er það rangt, að sú skylda hvíli á hverjum manni að ljósta upp brotum. Engin slík almenn skylda hvílir á borgurum þjóðfélagsins.

Á bls. 66 stendur: „Glæpamál öll eru rekin sem almenn lögreglumál.“ . Þetta veit hver maður, að er rangt. Glæpamál eru yfirleitt rekin sem sakamál. Þetta og margskonar fleiri villur, sem þarna koma fyrir, sér hver maður í landinu, sem kominn er til vits og ára og veit betur en höfundurinn. (Forseti: Ég vil benda hv. þm. á, að það er naumast tilhlýðilegt að deila þannig á einstaka menn, þó að villur kunni að vera í þeim bókum, sem þeir hafa ritað, þar sem þessir menn eru hér ekki né geta borið hönd fyrir höfuð sér). Ég skal benda hæstv. forseta á, að mér finnst hann ekki hafa ástæðu til að ámæla mér fyrir of langar ræður. Ég hefi ekki heldur farið út fyrir efnið. Hér er rætt um ríkisútgáfu á skólabókum, og þá finnst mér sjálfsagt að ræða um þær skólabækur, sem nú eru kenndar í skólum, sérstaklega þær, sem eru svo gagnsýrðar af vitleysum og hlutdrægni eins og hér er um að ræða. Að hér sé verið að ráðast á höfundinn persónulega, get ég ekki heldur fallizt á. Hér er aðeins verið að kritisera það, að svona bók sé kennd í skólum landsins, og ég tel það skyldu mína að benda á það, áður en þetta frv. fer héðan úr d., hversu hlutdrægar kennslubækur hér eru notaðar.

Á bls. 68 segir svo um það, þegar máli er áfrýjað til hæstaréttar: „Þegar dómur hefir fallið í málinu, getur hvor aðili sem vill áfrýjað því til hæstaréttar. En þá geta aðiljar ekki sjálfir sótt og varið málið lengur, heldur verða þeir að fela það lögfræðingum, sem ríkisvaldið hefir veitt sérstakan rétt til þess að flytja mál fyrir hæstarétti og nefndir eru hæstaréttarlögmenn.“

Þetta er algerlega rangt. Lögin um hæstarétt mæla svo fyrir, að þegar mál kemur fyrir réttinn, þá getur aðili varið eða sótt málið sjálfur, en þarf ekki að fá lögfræðing.

Ég skal svo ekki drepa á margt fleira í þessari bók, en vil þó minnast enn á eitt atriði, sem sýnir ónákvæmni höfundar. Á blaðsíðu 103 stendur:

„Langmestur hluti af útflutningsvörum Íslendinga (sem alls eru nú um 100 millj. kr. árlega) eru sjávarafurðir“. Bókin er gefin út 1928 og þá hafði útflutningur aldrei komizt nærri því að veru 100 millj. kr., heldur verið undanfarin ár um 60 millj. Um þetta hefði höfundur getað fengið upplýsingar í hagskýrslum, ef hann hefði viljað, en það, sem skakkar um hjá honum, er hvorki meira né minna en 40 millj. kr.

Ég skal svo ekki hryggja hæstv. forseta með því að lesa meira upp úr þessari bók. Ég þykist hafa sýnt fram á það með fullum rökum, að ekki sæmir að kenna í skólum ríkisins slíka bók, sem hefir þá tvo stórgalla, að vera gagnsýrð af hlutdrægni og að í henni úir og grúir af beinum villum. —

Hin bókin, sem gaf mér tilefni til þessara umr.; er Íslendingasaga eftir Arnór Sigurjónsson. Eins og ég gat um áðan, var hún gefin út með 2000 kr. styrk úr ríkissjóði. Ég skal ekki fara inn á efni þessarar bókar að öðru leyti en að sýna fram á, hvað hún er pólitískt lituð.

Á blaðsíðu 350 hefst kafli, sem heitir „Stjórnmál síðustu ára“. Þar er lýst stjórnmálabaráttu Íslendinga á síðari árum, allt fram til 1930, þegar bókin er gefin út. Þegar höfundur hefir talað um kosningarnar 1916, kemur hann að því að lýsa upphafi Framsfl., sem svo hljóðar:

„Er til þings kom í ársbyrjun 1917, stofnuðu þessir þingmenn Framsóknarflokkinn. Sá maður, er mest vann að því að koma skipulagi á flokkinn, var þó utanþingsmaður, Jónas Jónsson frá Hriflu, ungur kennari við kennaraskólann í Reykjavík. Hann var af fátæku foreldri í bændastétt, en hafði brotizt til vegs og mennta með frábærum dugnaði. Hann var um þessar mundir aðalforingi ungmennafélaga, og hafði svo verið þá um nokkur ár. Honum varð því auðvelt að safna um sig flestum röskustu mönnum, er ungmennafélögin höfðu á að skipa, og öðrum ungum mönnum. Hann hefir alltaf síðan verið mjög mikils ráðandi um stefnu flokksins og störf. Sá maður annar, er mestu hefir ráðið um stefnu flokksins og gengi, er Tryggvi Þórhallsson. Hann er að vísu biskupsson og kaupstaðarbarn að uppruna. En tekið hafði hann í arf eftir föður sinn alúðarást á íslenzkri bændastétt, og frá bernsku hafði hann verið starfsmaður í ungmennafélögum“. .... „Undir eins, er komin var skipun á Framsóknarflokkinn, réði hann mestu um svip hinnar pólitísku baráttu í landinu. Var það hvorttveggja, að hann hafði vaska menn í fararbroddi, og að það var hann, sem hratt stjórnmálaviðleitni þjóðarinnar inn á nýjar brautir “.

Þetta á að vera hlutlaus kennslubók í sögu! Þá kemur kafli, sem nefnist „Upphaf Sjálfstæðisflokksins nýja“. Þar segir svo:

„Er skipun komst á Framsóknarflokkinn, tóku foringjar gömlu flokkanna brátt höndum saman við efnamenn bæjanna, verzlunarmenn, útgerðarmenn og aðra atvinnurekendur. Í lok ófriðarins og næstu tvö árin eftir stóð hagur þeirra manna með miklum blóma, að því er séð varð og þeir hugðu sjálfir. Einkum var svo í Reykjavík. Því er eigi að undra, að þeir ætluðu sér mikinn hlut og tryðu á hlutverk sitt og hamingju“. ... „Einnig hnigu á sveif með þeim því nær allir embættismenn og margir bændur, einkum þeir rosknari og efnaðri.“ .... „Þessum flokki manna var eigi annt um mikla tilhlutun stjórnarvaldanna og réði því minna um svip stjórnmálabaráttunnar en Framsóknarflokkurinn. En hann réði í fyrstu miklu meiru um þróun athafnalífsins og þær breytingar aðrar, er urðu á þjóðlífinu, bæði illar og góðar“. ... „Í Reykjavík risu ný og ný hverfi af fátæklegum dýrtíðarbyggingum (er síðar hurfu að mestu) og höllum þeirra „nýríku“. ... „Töpin, gjaldþrotin komu að mestu á breið bök bankanna. Til að standast þau skattlögðu þeir nýja atvinnurekendur og aðra lántakendur með háum vöxtum. En atvinnurekendur reyndu að koma byrðinni yfir á verkalýðinn og bændurna með dýrri húsaleigu, gegnum verzlunina eða eftir ýmsum öðrum leiðum“.

Slík frásögn ætti betur heima í Alþýðublaðinu eða Tímanum en í hlutlausri kennslubók, sem kennd er í opinberum skólum.

Þá kemur frásögn um samruna íhaldsflokksins og frjálslynda flokksins, sem er nú, að því er ég ætla, ekki alveg hlutlaus heldur. Þar segir svo:

„Eftir að flokkurinn hafði beðið ósigur við kosningarnar 1927, breytti hann um nafn og kallar sig nú Sjálfstæðisflokk. Um leið hirti hann síðustu leifarnar af gamla Sjálfstæðisflokknum, er um hríð hafði kallað sig „frjálslyndan flokk“.“

Það sjá allir það „hlutleysi“, sem í þessum orðum felst.

Þá fer hann að lýsa því, þegar Framsfl. tók völd. Um það er sérstakur kafli með fyrirsögninni: „Framsóknarflokkurinn tekur við völdum“. Þar minnist hann m. a. á ríkiseinkasölu á tilbúnum áburði og að með henni væri öllum jarðræktarmönnum tryggður ódýr áburður. Síðan segir m. a. svo:

„Um sömu mundir kom fram árangur af starfi ungmennafélaganna að undirbúa hugarfarsbreytingu með þjóðinni. Þó að þeir menn, er unnu að þessari sókn þjóðarinnar, skipuðu sér eigi allir í Framsóknarflokkinn, var hún mjög í samræmi við vilja hans og stefnu og varð honum mjög til eflingar. Þeir, er vaxið höfðu upp í ungmennafélögunum, urðu hver af öðrum fulltíða menn og margir drjúgir til áhrifa og flestir gengu þeir undir merki flokksins. Svo var og um flesta unga menn í kennarastétt, en sú stétt fór mjög vaxandi, bæði að mannafla og áhrifum. En áhugamál kennara fengu hvergi betri byr en hjá for vígismönnum Framsóknarflokksins. ...“

„Þó að svo virðist, að Framsóknarflokkurinn láti sig sjávarútveginn minna skipta, hefir þó engu minna verið gert til að koma skipun á hann í stjórnartíð flokksins, sumt að atbeina hans, sumt meir fyrir atbeina Alþýðuflokksins. Árið 1930 var Íslandsbanka lokað, vegna þess að alltaf voru að koma til grafar hans ný og ný kurl frá djarfræðisárunum eftir ófriðinn. Þingið endurreisti bankann þegar í stað sem Útvegsbanka Íslands (Það stendur nú ekki alveg heima, að bankinn væri endurreistur „þegar í stað“.) með nýju hlutafé og ýmsum styrk öðrum og setti honum nýja stjórn. Skipulag síldarútvegsins hefir verið bætt með Síldareinkasölu Íslands“. ... „Um verklegar framkvæmdir ríkisins hefir á líkan hátt og í atvinnulífi þjóðarinnar tekið að svipa af nýrri öld, er tekið hefir vélar og verkkunnáttu í þjónustu sína miklu meir en áður. — Yfirleitt hefir hluttaka ríkisins bæði í athöfnum og menntaviðleitni þjóðarinnar mjög farið vaxandi síðan 1927“.

„Á þinginu 1931 sögðu þingmenn Alþýðuflokksins upp hlutleysi við Framsóknarflokkinn vegna ýmislegs ágreinings. Það leiddi til þingrofs og nýrra kosninga. Kjósendur munu almennt hafa litið svo á, að baráttan stæði um það, hve mikið skyldi hlynnt að landbúnaðinum og sveitunum, í trú á aukinn viðgang þeirra. Framsóknarflokkurinn fékk meiri hluta á þingi við kosningarnar, 23 fulltrúa af 42“.

Ég býst við, að allir, sem eitthvað fylgdust með stjórnmálabaráttunni á þessum tíma, viti, að það var kjördæmaskipunarmálið, sem kosið var um fyrst og fremst, en ekki það, hvort hlynna skyldi að landbúnaðinum.

Þá má geta þess, að hér er langur kafli um stjórnartímabil Framsóknarflokksins og talin upp mörg mál, sem hann hafi komið í framkvæmd ásamt Alþýðuflokknum, en það er enginn kafli um stjórnmálatímabil íhaldsflokksins 1923—1927, og ekkert á það minnzt nema lítilsháttar um fjárhag þjóðarinnar. Þar segir svo:

„Stjórn sú, er þá sat að völdum, Íhaldsráðuneytið 1924—1927. hafði og hug á að koma betri reiðu á fjárhag ríkisins. Ríkisskuldirnar minnkuðu að vísu lítið, ef miðað er við gullgildi þeirra, en það tókst fullkomlega að koma í veg fyrir, að gengishækkunin kæmi fjárhag ríkissjóðsins að sök í bráð, skuldaaukningin var stöðvuð, og ríkisskuldunum öllum komið fyrir í föstum lánum. Í stjórnartíð Framsóknarráðuneytisins hafa ríkisskuldirnar aftur farið vaxandi“. En höf. er ekki lengi að finna fullar afsakanir fyrir skuldaaukningu framsóknarstjórnarinnar: „Nokkru hafa þar um ráðið miklar framkvæmdir ríkisins. En svo hefir ríkið líka orðið að drekka fjármáladreggjarnar frá óreiðuárunum í ófriðarlokin og gengishækkuninni 1925“.

Ég skal þá láta þessum lestri lokið í þetta sinn. Ég býst við, að ýmsum hv. þm. finnist eftir þennan lestur, að það gæti verið rétt að athuga, hvort ekki mætti finna fleira, sem er ritað á sama hátt.

Eins og ég gat um áðan, þá þótti mér ekki rétt að láta þessari umr. ljúka svo, að ekki yrði sýnt fram á það með rökum, að það eru ekki allar þær kennslubækur, sem hér eru notaðar í skólum, svo gersamlega hlutlausar sem hv. frsm. meiri hl. vildi vera láta. Og það er sérstaklega ástæða til að minna á það, að þessar bækur eru ekki aðeins kenndar við opinbera skóla, heldur eru þær líka báðar gefnar út með ríkisstyrk. Ég skal engar ályktanir draga af þessu í sambandi við þetta frv. En fyrst framsóknarstj. hefir látið gefa út jafnóhæfar bækur og þessar, þá má geta nærri, hvort ekki veður gengið lengra í sömu átt, þegur komin er einokun á útgáfu allra skólabóka í landinu.