10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (4371)

117. mál, varnir gegn berklaveiki

Jónas Guðmundsson:

Ég skal lýsa því yfir, að ég er í aðalatriðunum samþykkur þessari stefnu, sem hér kemur fram. Það er komið mikið ólag á innheimtu þessa gjalds, ekki einungis í kaupstöðum, heldur einnig í sveitum, eins og sýslumaðurinn, sem nú talaði, hefir upplýst, þar sem nú í árslok 1934 ekki eitt einasta sýslufélag hefir greitt þetta gjald, en gjalddaginn mun vera 1. júlí, eða jafnvel fyrr. En spurningin er sú, hvort með þessu, sem hér er stungið upp á, er ekki bara verið að taka úr öðrum vasanum og láta í hinn.

Mér virtist hv. flm. halda því fram, að kaupstaðir stæðu enn verr í stykkinu í þessu efni en nokkurn tíma sveitirnar. Ég vil benda á, að það er ekki nema eðlilegt. Þetta á hv. flm. að vita allra manna bezt, að kaupstaðirnir hljóta fyrst að hætta að borga þetta gjald, því að sérstök hreppsfélög, sem kaupstaðirnir hafa framfært fátæklingana fyrir, borga ekki fátækraframfærsluna. T. d. framfærir Neskaupstaður að hálfu leyti einn þurfaling fyrir hrepp í Árnessýslu, sem hefir neitað að leggja með honum, og þetta kostar kaupstaðinn eins mikið og allt berklavarnargjald kaupstaðarins er, og þegar mörg svona tilfelli eru í kaupstöðunum, þá er sýnt, að þeir hætta að borga, og þeir hætta fyrst að borga það, sem þeir eiga að greiða ríkissjóði, af því að það verður fremur gengið að eignum sveitarfélaga, ef önnur þau gjöld, sem á þeim hvíla, eru ekki greidd.

Ég hefi þess vegna jafnvel búizt við að koma fram við 2. umr. málsins með till. um að nema þetta gjald alveg burt, en ég er ekki búinn að tala um það við mína flokksbræður, svo að ég viti, hvort þeir vildu standa að þessu með mér, en ég hefi fulla einurð á og löngun til að bera þetta fram og vænti, að hv. þm. V.-Sk. verði því fylgjandi.