15.12.1934
Neðri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í C-deild Alþingistíðinda. (4375)

20. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Gunnar Thoroddsen:

Ég stóð í þeirri meiningu, að hv. 2. þm. Árn. hefði kvatt sér hljóðs og ætlaði að svara ádeilu minni frá því um daginn, vegna þess, að hann léti nota í skóla sínum tvær kennslubækur, sem ég sýndi fram á, að eru hlutdrægar í garð stjórnmálaflokka. En þetta hefir ekki orðið. Ég hefi ekki heldur heyrt nein andmæli úr öðrum áttum gegn því, að bækur þessar væru hlutdrægar. Ádeila mín beindist fyrst og fremst að þeirri ríkisstj., sem styrkt hafði útgáfu bókanna, ennfremur að fræðslumálastjóra og þeim skólastjórum og kennurum, sem notað hafa þessar hlutdrægu bækur við kennslu sína. Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta atriði frekar, það sem engin mótmæli hafa komið fram, aðeins lýsa ánægju minni yfir þeirri viðurkenningu á réttmæti orða minna, sem í þögninni felst.