09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (4395)
24. mál, fátækralög
Jakob Möller [óyfirl.]:
Það er sjálfsagt nokkuð hæft í því hjá hv. 2. landsk., að sveitarflutningar séu mjög að leggjast niður. En það ef misskilningur hjá honum — og þann misskilning hefir nú hæstv. ráðh. tekið upp eftir honum — að möguleikinn fyrir sveitarflutningi geti ekki verkað í þá átt að halda framfærslukostnaðinum niðri. Það vita allir, sem sækja um fátækrastyrk utan sinnar framfærslusveitar, að krafan um sveitarflutning vofir alltaf yfir höfði þeim. Síkar kröfur munu vera bornar fram oftar heldur en hv. 2. landsk. gerir ráð fyrir; mér er kunnugt um, að það kemur ekki svo sjaldan fyrir. Og það er víst, að einmitt þeir menn, sem svo er ástatt um, að þeir dvelja ekki í sinni framfærslusveit, þeir leggja meir, að sér til þess að komast hjá að leita sveitarstyrks vegna þessa ákvæðis.
Hvað snertir hinu glæsilegu framtíðardrauma hæstv. atvmrh. um allsherjaralþýðutryggingar og afnám alls, fátækraframfæris, þá held ég, að ekki sé rétt af honum að viðra fram af sér að gera þær breyt. á fátækralöggjöfinni, sem nauðsynlegar kunna að þykja, þeirra drauma vegna. Ég hygg, að það eigi ennþá langt í land, að slíkir draumar verði að virkileika. Það verður áreiðanlega það langt þangað til fátækraframfærsla getur lagzt niður vegna alþýðutrygginga, að full þörf er á því að koma fátækramálunum þegar í eins gott horf eins og kostur er. Allar þær tryggingar, sem hæstv. ráðh. dreymir um, munu gera æðimiklar kröfur til framlaga af opinberu fé, sem eins og nú standa sakir eru ekki sjáanlegir miklir möguleikar til að fullnægja. Ég álít því ráðlegra — heldur en að vera að káka við breytingar á fátækralögunum, eins og hér er lagt til — að taka skrefið fullt út og gera landið að einu framfærsluhéraði. Þá félli líka niður allt þetta reiptog milli sveitarfélaga, sem hv. 2. landsk. hefir gert sig að sérstökum talsmanni fyrir, ekki aðeins á þessu þingi, heldur einnig á undanfarandi þingum. Er útlit fyrir, að hann hafi nú fengið góðan liðsmann í flokksbróður sínum, hv. þm. V.-Húnv., sem virtist nú jafnvel enn grimmari í reipdrættinum. Það er skiljanlegt, að forsjármenn sveitarfélaga hugsi til þess sem girnilegs ástands, að þurfa ekki annað en vísa fátæklingunum í kaupstaðina til þess að koma þeim af sér. (HannJ: Geta kaupstaðirnir þá ekki gert hið sama?). Ég var nú einmitt að hugsa um það undir ræðu hv. þm., að skeð gæti, að kaupstaðirnir gætu leikið einhverjum svona brögðum á móti, þegar svo væri komið, að dvalarsveit skyldi sjá fyrir þurfalingunum að öllu leyti. En ég held, að þessi reipdráttur sé ekki svo æskilegur, að gera ætti mikið til þess að magna hann frá því, sem nú er.