09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í C-deild Alþingistíðinda. (4427)
9. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónason) [óyfirl.]:
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, fer fram á aukinn benzínskatt. Ástæðan fyrir því, að þetta frv. er flutt, er sú, eins og hv. dm. er kunnugt, að það fer vaxandi kostnaðurinn við vegaviðhald, af því að það lengjast þeir vegir, sem þurfa mikið viðhald, vegna þess hvernig þeir voru gerðir í upphafi, og vegna þess að ekki fyrir löngu bætti Alþingi í þjóðvegatölu drjúgum vegarspotta, eitthvað um 800—900 km., eftir því sem vegamálastjóri hefir gefið upplýsingar um. Það er nú viðurkennt í öllum löndum, að það sé ekki óeðlilegt, að umferðin um vegina beri að allmiklu leyti viðhaldið á þeim. Það hefir verið í flestum löndum gert með því að leggja innflutningsgjald á benzín, sem notað er til þess að knýja áfram þau tæki, sem mest nota vegina.
Ég hefi fengið upplýsingar frá skrifstofu vegamálastjóra, sem vert er að athuga í þessu sambandi, um hve mikill skattur er lagður á benzín í ýmsum löndum. Ætla ég að gefa dálítið yfirlit yfir það, svo að hv. þdm. geti haft það til hliðsjónar, þegar þeir mynda sér skoðun um þetta frv. Samkv. þessari skýrslu er það svo, að
í Noregi er 10 aura skattur á lítra.
í Svíþjóð — 12 — — —
í Danmörku — 13 — — — —
í Englandi — 16,20 — — —
í Hollandi — 18,04 — — —
Auk þess stendur hér í þessu yfirliti, sem vegamálaskrifstofan hefir gefið mér um þetta mál, með leyfi hæstv. forseta:
„Frá eftirgreindum löndum hefi ég ekki fengið nákvæmar upplýsingar um skattinn, en hann er alstaðar yfir 20 aura á lítra. Í Frakklandi er hann 40 aurar á lítra og hærri en 20 aura á lítra bæði í Ítalíu og á Spáni“.
Þetta eru þær upplýsingar, sem ég hefi fengið um skattinn í öðrum löndum.
Til samanburðar vil ég geta þess, að eins og sakir standa er þessi skattur hjá okkur 4,438 aurar á lítra, eða tæplega 4,5 aur. Ef þetta frv. verður samþ., þá verður skatturinn á hvern lítra af benzíni 8,438 aurar. Þó að við gerum þessa hækkun á skattinum, þá verður hann samt lægri en í nokkru öðru landi, sem ég hefi getið um og nefnt er í þessu bréfi.
Það má segja — og ég hefi heyrt það á sumum mönnum, sem fást við akstur — að það séu betri vegir í þessum löndum, sem ég hefi nefnt, og þess vegna sé ekki óeðlilegt, að tekið sé hærra gjaldi af benzíninu. En í þessu sambandi má minna á það, að þó að þessi hækkun verði framkvæmd, þá er skatturinn samt lægri en í nokkru þessara landa. Auk þess má benda á, þó að ekki liggi fyrir skýrslur um það, að mér leikur sterkur grunur á, að vegaviðhaldið hjá okkur sé að miklum mun erfiðara en í þessum löndum. Það er vegna þess, hve langir vegirnir þurfa að vera til þess að halda uppi samgöngunum í svona stóru landi, og þar sem íbúafjöldinn er svo miklu minni hjá okkur, bæði raunverulega og hlutfallslega við stærð landsins, en í nokkru þeirra landa, er ég hefi nefnt. Ég held, að það sé því sanngjarnt að fara fram á þessa hækkun með tilliti til allrar aðstöðu okkar, eins og ég hefi drepið á.
Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þetta, en aðeins bæta því við, að þetta er einn liður í þeim tekjuöflunum, sem stj. álítur, að séu nauðynlegar til þess að hægt sé að halda við þeim verklegu framkvæmdum í landinu, sem fjárlagafrv. ber með sér. Og þessi tekjustofn hefir verið valinn til þess að fylla upp það rúm í hinum vantandi tekjum af þeim ástæðum, sem ég hefi nú fært fram.