09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (4430)
9. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Ég vil í sambandi við þessa atvinnu-ástæðu hv. 4. landsk. benda á það, að næsta mál á undan á dagskránni snertir ekkert í þá átt. Það miðar aðeins að því að auka dýrtíðina og gera mönnum, ekki sízt þeim, sem á mölinni búa og þurfa að kaupa flesta hluti, erfiðara fyrir að lifa, svo hv. þm. hefði vel getað verið á móti því frá byrjun. Annars finnst mér hv. Alþfl.menn ekki hafa verið gefnir fyrir að sýna mikla sannngirni í því að láta athuga mál í nefndum. Þeir hafa haft allra manna ákveðnastar og flokkslegastar skoðanir og ekki viljað ljá þeim málum eyra né athugun, sem þeir hafa verið á móti. En nú er eins og þessi flokksgigt hafi bráðnað úr þeim í blessuðu stjórnarsólskininu. Þeir ætla nú væntanlega að greiða atkv. með verðtollinum, sem þeir hafa mest skammað mig og aðra fyrir að vera með.
Ég vildi aðeins benda á þetta ósamræmi og að einhverjum öðrum öflum muni til að dreifa heldur en látið er uppi. Mér finnst þeir hafa keypt þessa pípu sína of dýrt það er a. m. k. ekki ennþá séð, hvað þeir fá fyrir sínu umbjóðendur fyrir allt það gjald, sem þeir eru að láta af hendi.