12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (4455)
55. mál, þingsköp Alþingis
Hannes Jónsson:
Ég hefi lítið athugað þetta frv., en mér virðist sem 1. gr. geti valdið ágreiningi, eða það ákvæði í henni, sem slær því föstu, að þingflokkar skuli senda menn til Ed. eftir atkvæðamagni hvers flokks fyrir sig í Sþ. Ég vil benda á, að þingfl. geta breytzt frá því, sem nú er. Við getum hugsað okkur, að hér eigi tveir eða fleiri smáflokkar þingfulltrúa og vilji kjósa saman til Ed. Þá munu raskast þau hlutföll milli þingflokka, sem hér er gert ráð fyrir í þessu frv. Ég vildi benda á þetta, að mér finnst ekki rétt, að tveir smáflokkar geti ekki kosið saman, ef þeim líkaði betur, þó þeir sinn í hvoru lagi hafi ekki bolmagn til að koma fulltrúa í Ed.