13.10.1934
Neðri deild: 9. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (4463)
59. mál, fiskiráð
Héðinn Valdimarsson:
Við Alþýðuflokksmenn munum ekki leggja á móti því, að frv. þetta nái að ganga til n. En manni verður ósjálfrátt á að hugsa, þegar maður les grg. þessa ómerkilega frv.: „Fjöllin tóku jóðsótt, en fæddist lítil mús“. Frv. fer nfl. fram á, að þetta fiskiráð geri tillögur, sem það hefir ekkert vald til að sjá um, að verði samþ. né framkvæmdar. Það hefir enga peninga nema úr verðjöfnunarsjóði til eigin starfsemi og úr þeim sjóði mun ekki vera mikið óráðstafað fé. Annars liggur ekki fyrir þessu Alþingi að stofna jafnhlægilegt fiskisovét sem þetta. Það hefir öðru og meiru að sinna í þessum málum. Fisksölusamlagið getur ekki starfað áfram í sama formi og verið hefir; þar þarf að gera á gagngerða breytingu. Það þarf ekki aðeins að skipuleggja söluna á saltfiskframleiðslunni, heldur þarf líka að taka til athugunar útflutninginn á ísfiski, harðfiski og hraðfrystum fiski. Þá er líka rétt, að þeir, sem hafa með höndum fisksöluna, annist einnig um nýjar markaðsleitir, en um það hefir Fisksölusamlagið alveg svikizt, eins og kunnugt er, en Alþingi verður að sjá um, að það verði framkvæmt. Eins og ég þegur hefi tekið fram, þá er frv. þetta gagnslaust með öllu, en eigi að síður munum við lofa því til n., því að þetta mál í heild mun verða lagt fyrir þingið í þeirri mynd, sem gagn getur orðið að.