20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (4524)
59. mál, fiskiráð
Frsm. minni hl. (Sigurður Kristjánsson):
Það er ekki mikil þörf á að svara hv. þm. Ísaf. En af því hann minntist á, að hann færi aldrei með persónulega áreitni í annara garð, vil ég minna á, að það hefir aldrei verið haldin jafnpersónuleg svívirðingaræða eins og sú, er hann flutti um mig hér í deildinni um daginn og tók hann heilan dag að semja. Hún var vitanlega klaufalega samin, en söm var hans gerð. Út af því, sem hann sagði, að ég hefði alltaf tapað fyrir honum, vil ég minna á, að hann bauð sig fram tvisvar í Norður-Ísafjarðarsýslu. Ég mælti móti honum og N.-Ísfirðingar létu hann falla fyrir þeim manni, sem Sjálfstfl. hafði í kjöri. Það er mjög greinilegt, að það var ekki eingöngu stefnunnar vegna, heldur miklu fremur mannsins, því sá næsti af hans, flokki, sem bauð sig þar fram, fékk miklu meira fylgi.
Ég vil bæta því við það, sem hann sagði um, að hann væri stoltur af þeirri stefnu, sem hafð svo mikið fylgi að koma honum inn á þing, að þeirri stefnu hefir þó ekki tekizt að safna um sig fleiri mönnum en það, að hún hefir hálfu minna fylgi í landinu en sú stefna, sem ég fylgi.