16.10.1934
Neðri deild: 11. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í C-deild Alþingistíðinda. (4540)

62. mál, sala lands Hvanneyrar til Siglufjarðarkaupstaðs

Flm. (Garðar Þorsteinsson):

Ég get látið nægja að vísa til grg. fyrir þessu frv. Ég vil benda á, að þetta mál hefir legið fyrir Alþingi í sama formi áður og ætíð verið vel tekið. Þó ekki hafi unnizt tími til að afgr. það. Frv. miðar að því að veita ríkisstj. heimild til að selja Siglufjarðarbæ land prestssetursins Hvanneyrar, þegar það losnar úr ábúð, svo hann geti notfært sér það á þann hátt, sem heppilegast þykir. Vona ég, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.