19.11.1934
Neðri deild: 40. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í C-deild Alþingistíðinda. (4547)

131. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands

Héðinn Valdimarsson:

Hv. þm. Vestm. vildi neita því, að þetta væri gjöf úr ríkissjóði, vegna þess að ríkið væri skyldugt til að bæta þeim mönnum, sem hefðu orðið fyrir töpum vegna þess, að þeir hefðu lagt bankanum til hlutafé. En það er einmitt það, sem ég er að halda fram, að sé alls ekki; ég álít, að það sé alls ekki ríkissjóður, sem eigi að bæta mönnum, ef þeir eru ginntir til þess að láta hlutafé í bankann, heldur þeir, sem hafa ginnt þá. Það stend ég við, og ég veit, að margir aðrir álíta, að ef nokkrum er um að kenna, þá er það söfnunarnefndinni og bankaeftirlitsmanninum, sem ég mun síðar víkja að. Sparifjáreigendur hefðu auðvitað fengið það, sem þeir áttu að fá, ef bankinn hefði verið gerður upp eins og Alþfl. stakk upp á. Þá var ekkert af þeim tekið eða til þeirra lagt. Og bankinn var þó aldrei svo illa stæður, að auk hlutafjár og varasjóðs, sem allt var tapað, væri líka allt innstæðufé hans tapað, því að eignir átti hann þó til.

Annars veit ég ekki, hvort hv. þm. hefir skilið þetta samband á milli skuldaskilasjóðs og Útvegsbankans, því að munurinn er sá, að í frv. um skuldaskilasjóð kemur hv. þm. og aðrir þeir, er flytja þetta frv., ekki með till. um að leggja neitt nýtt fé til þessa sjóðs, ekkert nema að taka venjulegan tekjustofn, sem verður að fara í ríkissjóð, án þess að þeir komi með nokkra till. um nýja tekjuöflun í staðinn. En í þessu tilfelli kemur hv. þm. með till. um að taka úr ríkissjóði 2 millj. kr. og láta til þessara hluthafa Útvegsbankans, og þar tel ég þó enn lengra gengið, því að um skuldaskilasjóðinn mátti þó segja, að einhver grundvöllur væri undir honum, efling atvinnu í landinu við sjávarútveg, en svo er ekki hér að neinu leyti.

Annars veit ég ekki, hvað er raunverulega hægt að kalla þetta annað en gjöf. Ef ríkissjóður tekur 2— 3 millj. kr. lán og fær fyrir það sama sem verðlausa pappíra, þá er hann þessari upphæð fátækari en áður, og þessa upphæð á að fá í hendur mönnum, sem ekki láta neitt í staðinn, sem verðmæti er í.

Við höfum sagt það, Alþýðuflokksmenn, að við viljum styðja frv. um skuldaskilasjóð, ef, einhver fjárhagslegur grundvöllur fæst fyrir því, að það frv. verði að gagni, en það er ekki á þann hátt, sem það frv. er borið fram.

Svo voru það fáein orð til hv. 3. þm. Reykv. Það má nú segja um hann, að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Hann þolir aldrei, að minnzt sé á eftirlitsmanninn með bönkum og sparisjóðum; það er eins og að nefna snöru í hengds manns húsi. Það er vitað, að öllu hlutafé bankans var safnað eftir að Íslandsbanka var lokað, og söfnunarnefndin fékk menn til að leggja þetta fé fram mikið til vegna þeirrar skýrslu, sem kom frá honum og hv. 2. þm. Rang. Hann ber því þunga ábyrgð af því að hafa fengið menn til að leggja fram hlutafé í þeirri vissu, að það væri tryggt.

Síðan Útvegsbankinn tók við, hefir hann grætt og líka tapað, en það er áreiðanlegt, að ef tekin er heildin, bæði gömlu lánin úr Íslandsbanka og líka það, sem hefir verið bætt á Útvegsbankann vegna hinna nýju viðskipta, þá sést það, að næstum öll töpin, sem bankinn hefir orðið fyrir, eru úr gömlu lánunum. En sparisjóðseigendur, sem lögðu fram hlutafé í Útvegsbankann, trúðu skýrslu hins opinbera eftirlitsmanns, og það var ekki undarlegt, því að það var ekki við því búizt, að fyrir þessar 14 þús., sem hann fékk, mundi hann ýmist ekki gera neitt eða þá gefa rangar skýrslur.