17.11.1934
Neðri deild: 39. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í C-deild Alþingistíðinda. (4567)
134. mál, bygging og ábúð á jörðum, sem eru almannaeign
Jón Sigurðsson:
Ég kann ekki við, að þetta mál fari svo gegnum þessa umr., að ekkert orð sé um það sagt annað en það, er flm. hafði fram að færa. Ég hafði reyndar ekki búizt við, að það yrði tekið fyrir nú, en það skiptir ekki miklu máli.
Hv. flm. þessa máls talaði um það, að út af fyrir sig gætu allir verið sammála um, að rétt væri að bæta aðstöðu þeirra, sem eru leiguliðar þess opinbera. Það út af fyrir sig býst ég við, að verði ekki ágreiningsatriði. En hins má þá líka minnast, að undanfarandi þing hafa bætt mjög aðstöðu leiguliða, en ekkert hefir verið gert sérstaklega fyrir sjálfseignarbændur, og hefðu þeir þess þó fulla þörf eins og nú er ástatt. En það er stefna þessa frv., sem ég get ekki aðhyllzt. Það er trú mín og sannfæring, sem studd er við þá reynslu, er ég hefi aflað mér, að sjálfseignarbúskapurinn sé okkur tryggastur og affarasælastur fyrir landbúnaðinn á allan hátt.
Þeir, sem voru fulltíða menn um síðustu aldamót, munu minnast þess ástands, sem þá ríkti í landinu, þegar þjóðjarðirnar voru sem flestar og kalla mátti, að leiguliðar, sem á þeim bjuggu, festu hvergi rætur, en voru á sífelldu flökti fram og aftur og gerðu þar af leiðandi ábýlisjörðum ekkert til bóta. Eftir að þjóðjarðasölulögin gengu í gildi og þessir sömu menn, sem áður voru alltaf að flytja sig búferlum, gátu keypt ábýlisjarðir sínar, hófu þeir stórfelldar umbætur á jörðum sínum — húsa- og jarðabætur. Ef það er borið saman við aðgerðaleysi landseta á mörgum þjóðjörðunum og flestum leigujörðum, þá er munurinn svo mikill og alkunnur, að óþarft er að lýsa því.
Að mínu áliti er því stigið stórt spor aftur á bak með þessu frv.; ef ríkið á smámsaman að kaupa upp þær jarðeignir, sem nú eru í sjálfsábúð, þá er með því vitanlega stefnt að því að gera alla bændur með tíð og tíma að leiguliðum ríkisins, — útrýma öllum sjálfseignarbændum.
Ég tel, að þessi breyt. hafi stórkostlega þýðingu til hins verra fyrir íslenzkan landbúnað, enda þótt vel verði að leiguliðunum búið. Ég tel, að það hafi þá breyt. í för með sér fyrir íslenzka bændur, að framtak þeirra og áhugi í búskapnum muni dvína og skapast sú kyrrstaða í landbúnaðinum, sem þjóðin má sízt við.
Ég lít svo á, að þessi ákvæði frv. séu svo varhugaverð, að ekki geti komið til mála að samþ. þau, en hin atriðin, sem meira er rætt um í frv., umbætur á kjörum leiguliða, sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um við þessa umr.
Ef hinsvegar ákvæði 10. gr. frv. verða samþ., þá er búið að smeygja inn litla fingrinum, og má þá búast við, að öll hendin komi á eftir — Skal ég svo ekki fjölyrða meira um þetta að sinni. Ég get mælt með því, að frv. fari til n., og álít, að n. þurfi að athuga það vel og gera á því verulegar breyt., ef af því á ekki að stafa stórkostleg hætta fyrir bændastéttina og landbúnaðinn.