18.10.1934
Neðri deild: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í C-deild Alþingistíðinda. (4597)
70. mál, strandferðir
Flm. (Gísli Guðmundsson) [óyfirl.]:
Ég get ekki látið hjá líða að víkja nokkrum orðum að hv. þm. G.-K. út af því, sem hann minntist á frystihúsafrv. mitt, þó að það sé óviðkomandi því máli, sem nú er á dagskrá. En það, sem hann sagði um meðferð þessa máls í landbn., kemur af vanþekkingu hans. Hann hefir aldrei sett sig inn í landbúnaðarmál og hefir ekkert vit á þeim, og er það að vísu svo um ýms fleiri mál. En frv. flutti ég í þeim tilgangi að fá því yfirlýst, að ákvæðin í lögunum frá 1933 um styrk til frystihúsa giltu einnig um þau frystihús, sem byggð væru hér eftir. Með afgreiðslu hv. landbn., sem ég sætti mig vel við, tel ég mig hafa náð tilganginum með frv. Annar, ætti hv. þm. G.K. að tala sem minnst um ómerkileg frv., því að ekki hefir annar þm. flutt meira áberandi ómerkileg frv., og hafa þau stundum verið skreytt með langri grg.
Það mátti heyra á hv. þm. Snæf., að hann hafði vonda samvizku út af aðförum Sjálfstfl. í fyrra, og get ég skilið það um hann, því að ég ætla, að hann sé sanngjarnari maður en hv. þm. G.-K. Hann spurði, hvernig stæði á því, að við hefðum ekki rannsakað þetta mál sjálfir. Auðvitað höfum við gert það, en hitt er eftir að vita, hvort skoðanir okkar á þessu máli fara saman við skoðanir meiri hl. Alþingis. Þessi ásökun hv. þm. Snæf. í garð okkar flm. var því ástæðulaus. Ættu nú hv. sjálfstæðismenn að láta þessar umr. sér að kenningu verða og bæta ráð sitt.