08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (4648)

79. mál, ferðamannaskrifstofa

Þorbergur Þorleifsson:

Ég á nokkrar brtt. við frv. þetta á þskj. 224 og miða þær að því að breyta frv. allmikið. En áður en ég fer út í þær, ætlaði ég að segja fáein orð um málið almennt og nauðsynina á því að setja á stofn slíka ferðamannaskrifstofu og hér er ætlazt til. Í nál. er aðeins gert ráð fyrir heimild til þess að setja slíka skrifstofu á stofn, og þykir mér það benda til þess, að hv. n. hafi ekki verið nægilega ljós þýðing þessa máls. Allir vita, hvílíkt gagn getur verið að ferðamannastraumnum til landsins. Flestar nágrunnaþjóðir okkar gera mikið til þess að hæna ferðamenn að, svo að þeir komi og eyði fé sínu í landinu. Flestir þeirra, sem ferðast svona, hafa við góð efni að búa og skilja oft talsvert fé eftir þar, sem þeir ferðast um. Að margra dómi er Ísland sérstaklega vel fallið til þess að verða ferðamannaland. Er lítið gert til þess að lokka erlenda ferðamenn hingað og búa svo að þeim, að þá fýsi að koma til landsins. Ferðamannastraumurinn til Íslands eykst lítið, og bendir það til þess, að eitthvað vanti til þess að draga ferðamennina að. Það, sem þar veldur mestu um, er hvað landið er lítið auglýst og yfirleitt lítið gert fyrir ferðamennina. En það er ekki von, að einstakir menn geti lagt mikið fé fram til þess að auglýsa landið, eða búa svo að ferðamönnunum, að viðunandi sé. Ríkið verður því að taka í taumana og setja upp ferðamannaskrifstofu og gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að auka ferðamannastrauminn, með því að auglýsa landið og gera þeim dvölina hér sem bezta. Hefir þetta verið tekið fram bæði í grg. frv. og hjá ýmsum hv. þm. fyrr og síðar undir umr. Þar sem hvorki meiri hl. eða minni hl. n., sem báðir hafa skilað áliti, hefir enn gert grein fyrir sínum till., sé ég ekki ástæðu til þess að ganga inn á að ræða þær nú. En ég á hér nokkrar brtt., sem ég skal þá gera grein fyrir. Ég tel það í fyrsta lagi galla á frv., að það á aðeins að vera heimildarlög, en það ákveður ekki, að ríkið skuli setja ferðamannaskrifstofuna á stofn. Það ætti þó ekki að vera neinn vandi að átta sig á því, hvort rétt sé, að ríkið geri það eða ekki. Finnst mér engin ástæða til þess að hafa þetta aðeins heimild, en ekki fast ákvæði. Eins og brtt. mín sýnir, vil ég, að í stað þess sem frv. gerir aðeins ráð fyrir þessu sem heimild, verði fastákveðið, að ferðamannaskrifstofan skuli sett á stofn. Önnur brtt. mín er við 2. gr. frv., og hljóðar fyrri liðurinn um, á hvern hátt eigi að framkvæma það, sem gr. talar um; en síðari liðurinn er aðeins orðabreyting. Við 3. gr. frv. er engin brtt.

Þá legg ég til að í stað 4. gr., sem hljóðar um heimild ferðamannaskrifstofu ríkisins til þess að heimta gjaldskrár af öðrum skrifstofum einstakra manna, komi gr. um hvernig skrifstofunni skuli veitt forstaða, og miðar að því að byggja frv. betur upp.

Í staðinn fyrir 5. gr. frv., sem hljóðar um, að ferðamannaskrifstofa ríkisins skuli hafa eftirlit með rekstri gisti- og veitingahúsa, einkum að því er snertir hreinlæti og umgengni, gerir brtt. ráð fyrir, að kom ný gr., svo hljóðandi:

„Ferðamannaskrifstofan hefir yfirumsjón með því, að ferðamönnum, innlendum og útlendum, sem þess óska, veitist hverskonar farbeini. Hún gerir samninga við skipafélög, bifreiðafélög eða eigendur bifreiða, hesteigendur, svo og umráðamenn annara farartækja, um flutning á ferðamönnum og um fargjöld.

Ferðamannaskrifstofa ríkisins, skal stuðla að því í hvívetna að örva straum ferðamanna til landsins og um landið, til aukinna hagsmuna fyrir landsmenn. Jafnframt skal hún ávallt hafa gát á því, að viðskiptum landsmanna við ferðamenn sé í hóf stillt og að þau séu drengileg“.

Næsta brtt. er við 6. gr. Samkvæmt frv. hefir ríkisstj. heimild til að láta einhverja af ríkisstofnunum þeim, sem þegar eru starfandi, hafa skrifstofuna með höndum. En brtt. ætlast til, að ferðamannaskrifstofan sé algerlega sjálfstæð stofnun. Ef hún á að koma að gagni, mega það ekki vera hjáverk annara stofnana. Einnig gerir brtt. ráð fyrir, að gjald sé tekið af ferðamönnum til þess að standa straum af kostnaðinum, samkv. nánari ákvæðum í reglugerð. Sömuleiðis er gert ráð fyrir, að ríkissjóður beri tap eða gróða, sem verða kann af rekstrinum. Þá er ennfremur gert ráð fyrir, að atvmrn. ákveði nánar í reglugerð um fyrirkomulag og rekstur skrifstofunnar að öðru leyti. Loks er lagt til, að fyrirsögn frv. verði: Frv. til l. um ferðamannaskrifstofu ríkisins.

Ég býst við, að ýmsum hv. þm. kunni að þykja athugavert að taka gjald af ferðamönnum fyrir þær leiðbeiningar, sem skrifstofan veitir, og finnist það á einhvern hátt óviðeigandi. En gjaldið þarf alls ekki að vera svo hátt, að það komi að sök eða fæli erlenda ferðamenn frá að koma til landsins. Hefi ég hugsað mér, að reikningar ferðamanna væru stimplaðir með t. d. 2—5%, eftir því, sem þörf krefði til þess að bera ubppi kostnað af skrifstofunni. Það er ekki gott, að ríkið þurfi að bera af skrifstofunni beinan kostnað, en ekki heldur ástæða til þess, að það græði. Þess vegna á að stilla gjöldum þeim, sem lögð eru á ferðamennina, svo í hóf, að þau aðeins beri uppi kostnað af skrifstofunni. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta fyrr en frsm. meiri og minni hl. hafa látið til sín heyra.