10.10.1934
Sameinað þing: 4. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (4655)

52. mál, ábyrgð á láni

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Í síðustu utanför sinni útvegaði fyrrv. fjmrh. Sauðárkrókshrepp 40000 kr. lán í Handelsbanken í Kaupmannahöfn, til að standast kostnað af rafmagnsveitu á Sauðárkróki. Lánið hefir enn ekki verið hægt að taka, þar sem lánveitandi heimtaði ábyrgð ríkissjóðs, en um það var engin heimild til í fjárl. Hreppsn. liggur mjög á láninu, og er þessi þáltill. fram borin til þess að reyna að flýta því, að hún geti fengið það. Málið ber ég hér fram í samráði við núv. fjmrh.

Vegna þess, hve málinu þarf að hraða, hafði ég hugsað mér að fá till. samþ. við tvær umr. í dag. En þegar ég bar málið undir fjvn., var meiri hl. n. ekki undir það búinn að taka ákvörðun. Er því ekki hægt að koma málinu lengra áleiðis í dag en svo, að það verði samþ. við fyrri umr. og því vísað til fjvn.

Ég geng út frá því, eftir viðtali við hæstv. fjmrh., að honum sýnist fært að taka á ríkissjóð þessa ábyrgð, ef hv. Alþ. samþykkir. Ætlast ég til, að ábyrgðarheimildin verði engu að síður tekin upp í fjárl. 1933.

Þáltill. er aðeins fram borin til að flýta því, að hreppsn. fái þetta lán, því að hún er í sárri þörf fyrir það, vegna ýmiskonar aðkallandi greiðslna, er nú standa á henni. Óska ég því, að Alþingi vilji samþ. till. við þessa umr. og vísa henni til síðari umr. og fjvn.