28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (4686)

163. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Hannes Jónsson:

Ég vil fá afgr. frv. mín, er snerta lánskjör landbúnaðarins, og ef hv. landbn. gerist svo djörf að ætla að kyrkja þessa viðleitni á því að rétta bændum nokkra hjálparhönd með tilliti til hins mikla þunga, er á þeim hvílir af fasteignaveðslánum, og ef henni tekst það, þá tel ég nauðsynlegt að flytja stórvægilegar brtt. við þetta frv. Á ég heimtingu á að fá fulla afgreiðslu á þessu máli, sem n. hefir setið á aðgerðarlaust allan þingtímann.