02.11.1934
Neðri deild: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (469)
10. mál, bráðabirgðaverðtollur
Frsm. (Sigfús Jónsson):
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er um framlenging á gildi l. frá 2. júní 1933 um bráðabirgðaverðtoll. Hv. Ed., sem hefir haft þetta mál til meðferðar, hefir lagt til, að frv. verði samþ., og fjhn. Nd. leggur sömuleiðis til eindregið, að það verði samþ. hér í hv. d.