04.12.1934
Neðri deild: 50. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í C-deild Alþingistíðinda. (4695)

163. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég ætla að svara nokkru aths. hv. þm. V.-Húnv. Hann hafði ýmislegt við frv. að athuga, og ætla ég ofurlítið að fara út í einstök atriði. Hann taldi illa farið, að ákvæðið um bústofnslánadeildina hefði verið strikað út úr frv. Hann taldi, að hún hefði sitt starf að inna af hendi í framtíðinni, og það væri verr farið, ef hún væri strikuð burt. Ég lít öðruvísi á þetta atriði. Mér er það ljóst, að þeir menn, sem eiga aðeins bústofn, þurfa að taka lán, en þá er sú leiðin réttari, að þeir fái þau annaðhvort úr veðdeild bankans eða úr Ræktunarsjóðnum, gegn ábyrgð hreppsnefndar, og baktryggi henni með bústofni sínum. Þannig geta þeir notað bústofninn til þess að komast að sem beztum kjörum, þó að bústofnslánadeildin sé felld niður. Hann taldi, að frv. væri byggt á heimild, og þar væri því aðeins um skóbótaskipti að ræða frá hans frv. En sá er munurinn, að þetta frv. er byggt á heimild, sem líkur eru til, að hægt verði að nota. Ef við tökum t. d. þau ákvæði, sem varða Ræktunarsjóðinn, þá er það atriði nákvæmlega rannsakað af mér og hv. 2. þm. N.-M. ásamt Brynjólfi Stefánssyni. Við höfum gaumgæfilega athugað það, að Búnaðarbankanum er þetta fært án þess að bíða halla við það. Það verður minna af vöxtum, sem leggst við stofnsjóðinn, svo að hann stækkar ekki eins ört. En úr þessu má bæta með því að flytja viðlagasjóð til Búnaðarbankans sem óskoraða eign hans. Hann tekur vexti og getur varið þeim til lánalækkunar að nokkru leyti, og svo til vaxtar Búnaðarbankanum, svo að hann geti haldið starfsemi sinni óbreyttri.

Þá var hv. þm. að spyrja um það, hvort heimildin til þess að taka lán erlendis myndi verða notuð. Ég get fullvissað hann um það, að hún mun verða notuð, svo framarlega sem lán fæst erlendis með viðunandi kjörum, og það er eina leiðin til þess að fá breytt lánakjörum þeirra, sem hafa nú lán í sparisjóðum út á fasteignir sínar.

Þá var hv. þm. að tala um byggingar- og landnámssjóðslánin, hve mikil nauðsyn væri að lækka þau lán. Það getur vel verið nauðsyn að lækka lán, þó þau séu veitt með góðum kjörum, jafnvel þó engir vextir séu greiddir af þeim. En mér finnst óréttlátt og ósanngjarnt á meðan vextir eru ekki lækkaðir almennt og meðan landbúnaðurinn sætir lánakjörum, sem eru hærri en 5% vextir, að ráðast á garðinn þar, sem hann er lægri, eða byrja að lækka þá vexti, sem eru langt fyrir neðan. Eina færa leiðin til að létta þau lán er að skera þau niður, eins og gert hefir verið með kreppulánasjóðslánunum; ég veit, að í mörgum tilfellum hefir þar verið skorið af fasteignaveðslánum. (HannJ: Ekki nema þeim, sem voru yfir fasteignamat). Það er heimild til að gera það, ef stjórn sjóðsins álítur fasteignamatið of hátt.

Þá var þm. að vitna í, að ekki bæri saman skýrslum landbn., sem hér hafa verið lagðar fram, og skýrslum kreppulánasjóðs. Ég get sagt honum það, að upplýsingarnar eru frá sama stað, sömu tölur lagðar til grundvallar, aðeins misjöfn útfærsla. Hér eru sparisjóðslánin t. d. ekki talin nema 1,5 millj. kr., en eru sennilega um 6 millj., og þá eru ekki talin hér með ábyrgðarlán, og býst ég við, að kreppulánasjóður hafi þegar dregið frá þann hluta, sem er eftir gefinn, áður en þessi tafla var samin. (HannJ: Það var ekki búið). — Hv. þm. talaði um, að það væri undarlegt að gera almennum skuldum hærra undir höfði en fasteignalánum. Það ætti ekki að þurfa að segja það, að kreppulánasjóðslögin eru byggð á sérstöku ónormölu ástandi, sem hefir valdið því, að þetta var sett af stað. En það er ekki hægt að byggja framtíðarskipulag á lánskjörum landbúnaðarins á óeðlilegu ástandi. Það er ekki hægt að krefja ríkissjóð um fjárframlög í þessu skyni æ ofan í æ; til þess hefir ríkissjóður enga getu, hvað sem kann að líða vilja Alþingis. Annars held ég, að þetta sé orðið svo rætt milli okkar hv. þm. V.-Húnv., að ég nenni ekki að karpa lengur við hann. Ef eitthvað er eftir, má það bíða 3. umr. En út af því, sem hann sagði, að ekki mundi hægt að fá nægilega hagkvæmt lán erlendis til að breyta þessum lánum, skal ég játa, að það getur vel verið, að það sé erfitt. Þess vegna leggjum við til, að stj. sé gefin heimild til að nota hálfa vextina af stofnsjóði til vaxtagreiðslu af öðrum vaxtabréfum veðdeildarinnar, svo þau lán verði ekki of dýr.

Ég held ég láti svo hér við sitja og tek ekki til máls aftur nema sérstök ástæða sé til.