23.11.1934
Sameinað þing: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (4711)
162. mál, ábyrgð á láni fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
Sigurður Kristjánsson:
Ég vil einungis taka undir það hjá hv. þm. Hafnf., að sjálfsagt er, að fullar tryggingar séu settar fyrir láninu, og þykir mér gott að heyra, að þannig hefir málið verið hugsað frá upphafi, en ég taldi rétt, að það stæði sem skilyrði fyrir ábyrgðinni. Ég vænti, að allir skilji, að á því er höfuðmunur, þegar bæjarfélag kemur til Alþ. með slíka ábyrgðarbeiðni fyrir byggingarfyrirtæki, og byggingarnar síðan settar að veði, heldur en þegar beðið er um ábyrgð til þess að greiða gamlar lausaskuldir. Og hvað snertir útgerðarfyrirtækið, sem hv. þm. minntist á, þá er ekkert veð í því fyrir þessari skuld, því að eftir því, sem ég bezt veit, er bæjarútgerðin svo hlaðin skuldum, að engin leið er til þess, að hún fái risið undir nokkurri viðbót. Annars er engin ástæða til þrætu út af þessu máli frekar. Allir hv. alþm. eru sammála um, að fullar tryggingar beri að setja.