07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í C-deild Alþingistíðinda. (4735)
164. mál, Söfnunarsjóður Íslands
Jón Pálmason:
Hv. þdm. hafa sennilega tekið eftir því, að ég skrifaði undir nál. landbn. með fyrirvara. Viðvíkjandi Söfnunarsjóði Íslands og hækkun vaxta í honum þýddi minn fyrirvari ekkert annað en það, að ég vildi kynna mér álit framkvæmdastjórnar sjóðs þessa. Eftir að hafa kynnt mér það hefi ég leyft mér að koma fram með brtt. á þskj. 690, sem er á þá leið, að þessi vaxtalækkun um 1% nái aðeins til þeirra lána, sem jarðarveð er fyrir. Hluturinn er sá, að mikil þörf er á því, að allir vextir í landinu verði lækkaðir, og það ekki síður hjá bönkum heldur en þeim stofnunum, sem við í landbn. höfum gert till. um lækkun vaxta hjá. En það hefir að undanförnu gengið illa að fá stofnanir til þess að færa niður vexti, þrátt fyrir þann vilja Alþ., sem komið hefir í ljós um þetta efni. Það er þess vegna frá mínu sjónarmiði betra, þegar um niðurfærslu á vöxtum hjá vissri ákveðinni peningastofnun er að ræða, að gera þá niðurfærslu í samráði við framkvæmdastjórn þeirrar stofnunar, sem hlut á að máli, ef þess er kostur, fyrst það er ekki tekið fyrir að færa niður vexti hjá öllum peningastofnunum landsins. Samþykkt þessarar brtt. mundi þýða það, að vextir lækkuðu niður í 5% af um 1200000 kr. lánum í sjóðnum, sem veitt eru gegn jarðarveði, en það er nálega 1/3 hl. af öllum fasteignaveðslánum, sem sjóðurinn hefir lánað.
Það má með miklum rétti segja, að vextir af öllum fasteignaveðslánum hjá þessari stofnun eigi að vera þeir sömu. En sannleikurinn er sá, að þó að vextir séu 6% af þessum lánum, þá hafa þeir, sem þessi lán hafa fengið, mátt teljast heppnari heldur en þeir, sem tóku lán í veðdeild Landsbankans. Nú hefir framkvæmdarstjórn Söfnunarsjóðs Ísl. gefið mér það upp, að það sé ætlun þeirra, ef till. þessi verður samþ., að færa alla aðra vexti hjá sjóðnum niður í 5½%. Þá yrði munurinn aðeins ½% á vöxtum af jarðarveðslánum og öðrum lánum, sem jarðarveðslán yrðu með lægri vöxtum. Má því segja, að stofnunin leggi 6 þús. kr. til þess árlega að færa niður vexti af fasteignaveðslánum bænda, ef miðað er við, að aðrir vextir í sjóðnum verði 5½%.
Mér hefir skilizt, að meiri hl. landbn. geti gengið inn á að afgr. málið í þessari mynd. Sé ég svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri að svo komnu.