11.10.1934
Efri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í C-deild Alþingistíðinda. (4790)
42. mál, jarðræktarlög
Jónas Jónsson [óyfirl.]:
Ég hygg, að hv. þm. þurfi ekki að kvarta yfir því, þó þetta mál, sem í sjálfu sér er stórmál og snertir bæði atvinnulíf og fjármál þjóðarinnar, sé nokkuð rætt nú strax við þessa umr., og þó að það sé athugað m. a., hvaða fjárgjöld muni bætast á ríkissjóðinn, ef þetta yrði að lögum.
Hv. þm. sagðist ekki hafa getað látið þetta mál til sín taka á síðasta þingi vegna kreppumálanna. Ég fæ ekki séð, að það hefði neitt þurft að spilla fyrir kreppulöggjöfinni fremur þá heldur en nú, þó að þetta mál hefði verið tekið upp samhliða. Það er nú að koma á daginn, sem reyndar allir vissu fyrir, að kreppulöggjöfin leggur á herðar ríkissjóðs veruleg útgjöld nú á næstu árum. Ég verð að halda því fram, að fyrst áhugi hv. þm. fyrir hag bændastéttarinnar er svo mikill sem hann vill vera láta, að honum hefði legið nær að gera einhverjar umbætur á kreppulöggjöfinni, sem hann sjálfur hefir átt sinn þátt í að skapa og hefir sýnt sig að vera byggð á meingölluðu systemi.
Hv. þm. flýtti sér að koma þessu í lag fyrir kosningarnar 1933, svo að það mætti verða til ádráttar og framdráttar hinum beztu vinum hans. En ég held, að hv. þm. hafi gleymt því, að það geta stundum verið óþurrkar hér á Íslandi. Og hv. þm. gleymdi einnig að vinna að lausn afurðasölumálsins. Honum kom það ekki í hug fyrr en menn, sem hann hafði unnið með í flokki, höfðu ákveðið að mynda stjórn með verkamönnum, ef ekkert slys kæmi fyrir, til þess að hrinda málinu í framkvæmd strax. Þegar svo nánustu samstarfsmenn hv. 10. landsk. þm. voru búnir að láta málið stranda, kemur einn af vildarvinum hv. þm. með till. um að láta rannsaka þetta mál, sem Alþfl. og Framsfl. höfðu ákveðið að leysa í sameiningu og höfðu einmitt burði til að leysa. Deilurnar, sem hér urðu um þetta mál, voru um það, hve alvarlega ætti að taka á málinu. Tillögumaðurinn vildi fela stj. að rannsaka málið með aðstoð starfsmannanna í stjórnarráðinu og aðeins til málamynda láta leita umsagnar Búnaðarfélagsins, Alþýðusambandsins, Samb. ísl. samvinnufél., Sláturfélags Suðurlands, Mjólkurbandalags Suðurlands og Kaupfélags Borgfirðinga. Brtt. frá mér, sem gekk í þá átt, að þessum aðilum væri gefinn kostur á að eiga fulltrúa í n., sem ríkisstj. skipaði til þess að semja frv. um skipulagningu afurðasölunnar, var felld með 8:6 atkv. Íhaldsmenn og þeir menn, sem standa með hv. 10. landsk. þm.. voru sammála um að fella þessa brtt. mína. — Ég sýndi þá fram á það, að starfsmennirnir í stjórnarráðinu hefðu ekki aðstöðu til að vinna að undirbúningi þessa máls, af eðlilegum ástæðum, heldur yrði að fela málið mönnum, sem bæru skyn á það og hefðu aðstöðu til að leysa það. En eins og ég sagði, till. mín var felld, um að láta helztu stofnanir landbúnaðarins leysa málið í samvinnu við stærstu samtökin, sem neytendurnir hafa. Hv. 10. landsk. þm. barðist á móti þessari till. minni. Hv. þm. vildi ekki þiggja lykilinn til þess að leysa málið. Hv. 10. landsk. þm. lagði meira upp úr því að geta tengt lítinn hluta bændanna við spekúlantana. — Svo fór þó að lokum, að hv. þm. sá fram á það, að ég myndi hafa haft rétt fyrir mér með till. mínum í þessu máli, því að hann fól einmitt stofnunum landbúnaðarins að velja mennina í n., eins og ég hafði stungið upp á. Það varð með þeim hætti, að forustumenn kaupfélaganna höfðu komið saman á fund hér í Rvík, til þess að vinna að lausn þessa máls, og höfðu komið sér saman um lausnina í samráði við fulltrúa verkamannanna. Þetta frv., sem þeir þannig höfðu gert, er uppistaðan í bráðabirgðalögunum, sem stj. hefir gefið út um þetta efni og leitar nú staðfestingar þingsins á. Og svo hlaut þetta auðvitað að verða, að mennirnir með þekkinguna og reynsluna yrðu til þess að finna lausnina á þessu vandamáli. Og þegar þeir voru búnir að leysa málið, þá neyddist hv. þm. til þess að skipa þá í n., svo að minna bæri á því, að hann og vinir hans höfðu verið á villigötum með málið.
Gangur málsins er með fáum orðum þessi: Framsfl. tekur málið upp til þess að leysa það og vili mynda stjórn um málið, en þetta er eyðilagt af vinum hv. 10. landsk. þm. Næsta stigið er svo það, að ákveðið er af vinum hv. þm. að spyrja aðeins samvinnufélögin um álit þeirra á málinu, svo sem eins og fyrir síðasakir. Forgöngumenn samvinnufélaganna eiga svo fund með sér hér í Rvík af eigin frumkvæði og gera till. í málinu — og þá skipar hv. 10. landsk. þm. þá í n. um málið, eins og til að hreinskrifa till., og síðan eru þær lögfestar með bráðabirgðalögum. Það er því svo, að því betur, sem málið er krufið til mergjar, því minni ástæðu hefir hv. 10. landsk. þm. til að státa af því, enda var málið aldrei annað en leikur fyrir honum, þó að kjósendurnir tækju í taumana og gerðu málið að veruleika, eins og það hafði alltaf verið fyrir mér.
Hv. 10. landsk. þm. var eitthvað að tala um það, að ég ætlaði mér allt gott, en öðrum allt illt. Held ég að þetta sé nú ofmælt hjá hv. þm. Hinsvegar hefi ég heyrt það, að í seinni tíð blandist mjög inn í stólræður hv. þm. vonzka mannanna hér í Rvík, sem hv. þm. þykist hafa kennt kulda af.
Þá var hv. þm. einnig að tala um það, að ég hefði verið með hnútur til Búnaðarfélagsins. Skal ég ekki fara langt út í það mál, en aðeins minna á það, að komið hefir fyrir, að sérfræðingar Búnaðarfél. hafa deilt um það á búnaðarþingi, hvaða kartöflutegund eigi að rækta eða hvernig súrheysgryfjur eigi að vera, af jafnmiklum hita eins og þegar framsóknarmenn og íhaldsmenn eru að deila hverjir á aðra. Þegar sérfræðingar Búnaðarfél. deila svo frammi fyrir bændum, hljóta augun á mönnum að opnast fyrir því, að forustuna brestur í búnaðarmálunum, og af því stafar allt hikið og fálmið, sem einkennir framkvæmdir félagsins. Væri það ólíkt skemmtilegra, að sérfræðingar Búnaðarfél. gæfu sig alla að þeim málum, sem þeim ber að vinna að, en að þeir væru að bjóða sig fram sem sprengimenn í fylkingum bændastéttarinnar. Það er og fullkomlega eðlilegt, að bændur vilji fá að vita það ákveðið, hvernig þeirra málefnum er bezt borgið, en leggi litið upp úr því, þegar þeir menn, sem þeim eiga að leiðbeina, liggja í hatrömmum deilum um það, hvað gera skuli. Bændur ætlast til þess, að sérfræðingar Búnaðarfél. megi verða þeim til stuðnings í lífsbaráttunni, en ekki að þeir séu hafðir til að sundra atkv. í sveitunum, til þess að þóknast hv. 1. þm. Skagf. og félögum hans, sem allir voru með blíðu brosi, þegar þeir heyrðu talað um sprengikandidatana. (MG: Nú sprakk blaðran).
Út af verkfærakaupasjóðnum skal ég aðeins segja það, að ég átti ekki upptökin að því, að styrkurinn var felldur niður, heldur þeir menn, sem hv. þm. er nú í flokki með.
Þá var hv. þm. að breiða sig út yfir sparsemi fráfarandi stj., en þóttist hinsvegar geta bent á eyðslukló, sem verið hefði í stj. á undan honum. Vil ég aðeins benda hv. 10. landsk. þm. á það, að í stj. með honum var alkunnur íhaldsmaður, sem eyddi á sínum tíma 10—14 millj. umfram það, sem fjárlög heimiluðu honum að eyða; þarf hv. þm. ekki annað að fara en þangað um eyðslu utan fjárlaga. — Hv. þm. vildi koma sér hjá því að tala um nýja tekjuöflunarmöguleika til að mæta þeim auknu útgjöldum, sem frv. hefir í för með sér. Í stjórnartíð hv. þm. var tekið 400 þús. kr. eyðslulán, og hlýtur hv. þm. þó að skilja það, að sú staðreynd, að borga verður þetta lán, hefir í för með sér óhjákvæmilega, að ekki verður jafnauðvelt og ella hefði verið að koma því við að gera alla þá góðu hluti, sem peninga þarf til. — Ég var eini maðurinn í þessari d., sem varaði við þessu láni. Ég spurði stj., hvort hún treysti sér að borga þetta lán aftur, og varaði við of mikilli bjartsýni í þeim efnum. Hinar frómu og velmeintu ráðleggingar hv. þm. um sparnað ná því sízt af öllu til mín.
Hv. 10. landsk. vill auðsjáanlega sýna hinn brennandi áhuga sinn á málefnum landbúnaðarins. Vil ég minna hann á það, að hann lét þó undir höfuð leggjast að borga styrkinn til mjólkurbúanna, enda þótt bændur þeir, sem í hlut áttu, væru í sárustu þörf fyrir styrkinn og meiri hl. Alþingis hefði skorað á hann að veita styrkinn. Hv. þm. lofaði að vísu uppbót á kjötið, ef það seldist illa, en ætli það hefði ekki farið eins og með mjólkurbúastyrkinn. ef komið hefði til kasta hv. þm. að standa við þau loforð. Það þýðir og lítið fyrir hv. þm. að vera að berja sér hér á brjóst og láta eins og hann sé einhver útvalinn Goliat, sem aldrei hafi hvikað frá því að borga sem hæst til bændanna. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. myndi reka sig á það sama og aðrir, að ekki er nóg að eyða, að það þarf peninga til hlutanna. Hinsvegar væri gott til þess að vita, ef hv. þm. vildi benda á einhverja tekjustofna í þessu skyni, en auðvitað þarf það að vera af fyrirhyggju gert og þeirri alvöru, sem nauðsyn málsins krefur.