11.10.1934
Efri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í C-deild Alþingistíðinda. (4791)

42. mál, jarðræktarlög

Flm. (Þorsteinn Briem) [óyfirl.]:

Ég hjó sérstaklega eftir einni setningu í ræðu hv. þm. S.-Þ. Það var setningin: „Það er ekki nóg að eyða“. Ég hrökk við og spurði sjálfan mig, hvort mér hefði ekki misheyrzt. En ég heyrði rétt, og ég gleðst af þessari setningu, vegna fortíðar hv. þm. S.-Þ. Hygg ég, að helztu sakirnar, sem hv. þm. kann að hafa á hendur mér, séu einmitt, að ég hefi látið mér í hug koma eitthvað svipað þessu, að ekki væri nóg að eyða.

Hv. þm. talaði um, að ég hefði átt að koma með þessar till. fyrr, þegar verið var að ganga frá kreppulánalöggjöfinni, þá hefði verið nóg af peningum og allt til reiðu. Hygg ég þó, að þeir, sem börðust fyrir kreppulánalöggjöfinni og lögðu henni lið sitt af meiri alúð en jafnvel hv. þm. S.-Þ., hafi fundizt við nógu ramman að draga. (JJ: Var íhaldið þungt fyrir?). Málinu var ekki vel tekið af öllum, eins og hv. þm. S.-Þ. má gerst vita. Hv. þm. gaf það í skyn, að ekki hefði legið á kreppulánalöggjöfinni, hún hefði vel mátt bíða. Hygg ég, að bændur muni þó á einu máli um það, að það var einmitt þetta mál, sem þurfti að leysa fyrst.

Þá veik hv. þm. enn að afurðasölunni og kom með sinn venjulega texta í því sambandi. Skal ég ekki fara langt út í það mál. Ég þykist nú vera kunnugur gangi þeirra mála, þegar stjórnarskiptin stóðu til og trúlofunin var í beztum gangi, og ég leyfi mér að fullyrða það, að afurðasölumálið var ekki fundið upp fyrr en á eftir, til þess að punta upp á það heilaga hjónaband. Ég skal og fræða hv. þm. S.-Þ. um það, að fyrrv. stj. vildi gefa afurðasölumálinu fullan gaum og einmitt hafa með í ráðum þá aðila, sem hv. þm. nefndi, en við töldum ekki tíma til þess kominn að leita aðstoðar löggjafarinnar í málinu og vildum reyna án hennar aðstoðar að koma málinu í betra og viðunanlegra horf. Í umr. um þáltill., sem hv. þm. nefndi, tók ég það skýrt fram, að ég vildi taka fullt tillit til áðurnefndra aðilja, enda hugsa ég, að vandfundinn verði sá staður í ræðum mínum þá, sem bendi í aðra átt. — Hv. þm. fann mér það til foráttu, að ég hefði ekki farið að sinna málinu fyrr en um vorið, en þessi ásökun hv. þm. er algerlega röng. Ég hafði undirbúið skýrslusöfnun um málið bæði úr innlendri og erlendri reynslu, og var sú söfnun langt á veg komin í febrúarbyrjun. Ég hafði og alltaf talið sjálfsagt, að Samband ísl. samvinnufél., Búnaðarfél., Sláturfél. Suðurlands og Alþýðusambandið tækju þátt í að vinna að undirbúningi málsins, enda hafði ég skipað þessa aðila í n. til að vinna að málinu löngu áður en kaupfélagsstjórafundurinn margumtalaði átti sér stað. Hv. þm. S.-Þ. skýtur því framhjá markinu með bollaleggingum sínum um þetta.

Viðvíkjandi stólræðum mínum á Akranesi vil ég segja það, að ég hefi ekki orðið var við hv. þm. S.-Þ. sem kirkjugest hjá mér þar, en það má vera, að hann eigi eftir að verða það. Hygg ég, að stólræður mínar séu enn svipaðar og þær voru áður, og hv. þm. S.-Þ. hefir stundum látið svo sem honum líkaði þær ekki illa. (MG: Tímarnir breytast).

Þá var það Búnaðarfélagið. Hv. þm. notaði það fyrir átyllu til þess að ráðast á það, að búnaðarráðunautunum hefði ekki komið saman um það, hvort hentugra væri að nota Eyvind eða eitthvert annað kartöfluafbrigði, sem reynt hefði verið. Er þetta þó allt eðlilegt. Það eru framfarir í öllum hlutum, og eftir því, sem áfram miðar, kemur fleira til athugunar, og er ekki nema gott til þess að vita, að menn beri þannig saman plögg sín.

Hv. þm. vildi kenna mér það, að frestað hefði verið framkvæmdum verkfærakaupasjóðs. Þetta var þó gert áður en ég kom nærri nokkrum stjórnmálum, enda hygg ég, að hv. þm. myndi vilja bera skjöld fyrir flesta þá, sem samþykktu þessa ráðstöfun.

Þá var hv. þm. að tala um það, að ég hefði drepið á eitthvert ráðuneyti, sem farið hefði í óvarlegra lagi með fé landsins. „Nefndi lamb og leit á mig“ — eins og þar stendur. Er gott ef tilfinningar hans eru orðnar svona næmar í þessu efni, og verður að telja það gleðilegar framfarir, ef rétt reynist.

Hv. þm. var eitthvað að tala um það, að ég myndi vera andstæður tekjuöflunarfyrirætlunum stjórnarinnar. Ég hefi á engan hátt látið í ljós ennþá, hvort ég er þeim andstæður eða ekki, en hitt hefi ég sagt, að þar sem líkur væru til þess, að stj. kæmi fram lögum um allmjög auknar ríkistekjur, væri ekki nema sanngjarnt og eðlilegt, að einhver lítill hluti af þeim tekjuauka rynni til landbúnaðarins, og síðastur manna myndi ég til að finna að því, að stj. aflaði tekna landbúnaðinum til handa.

Út af þeim árásum, sem fram komu hjá hv. þm. S.-Þ. í garð fyrrv. fjmrh., vil ég benda honum á, að hann á ekki sæti hér í d., og því ætti betur við, að hv. þm. S.-Þ. bæri fram þau árásarefni sín í sameinuðu þingi.

Þá reyndi hv. þm. að áfellast mig fyrir það, að ég hefði í stjórnartíð minni látið undir höfuð leggjast að greiða mjólkurbúastyrkinn. En nú er svo mál með vexti, að ákveðið er í lögum, að styrk þennan skuli því aðeins greiða, að Mjólkurbú Flóamanna greiði ríkissjóði aftur það fé, sem það hefir fengið þar að láni. Ég hélt nú, að ekki væri svo langt á milli hv. þm. S.-Þ. og formanns Mjólkurbús Flóamanna, að honum væri ókunnugt um, að búið gat ekki innt greiðslur sínar af hendi. Má vera, að ég hafi ekki gengið nógu hart að mjólkurbúinu, en ég taldi það nú svo nauðsynlega stofnun, að ég vildi ekki verða til þess að leggja það í rústir eftir að ég hafði sannfærzt um, að formaður þess hafði mikið til síns máls um þröngan fjárhag búsins. En án þess að búið greiddi skuld sína hafði stj. enga heimild til að greiða mjólkurbúastyrkinn. Vera má, að þessu sé öllu kippt í lag nú, og er gott, ef svo er.

Hv. þm. minntist ennfremur á uppbótina á selt kjöt samkv. heimild í fjárl. í fyrra. Ég hafði sent út auglýsingu til allra kjötseljenda um að senda skýrslur um kjötsöluna til atvinnumálaráðuneytisins, og hafði auglýsing þessi verið margendurtekin bæði á prenti og í útvarpi. En skýrslur um þetta efni voru þó komnar aðeins að litlu leyti, þegar stjórnarskiptin urðu. Ég vænti þess, að skýrslur þessar séu allar komnar nú, og láti þá sú starfsama stjórn, er nú situr að völdum, ekki á sér standa að greiða uppbótina.

Hv. þm. var að tala um, að ég áliti mig einhverskonar Golíat. Ó, nei. Það er nú fjarri því, að svo sé, eða ég hafi gefið tilefni til þess, að ég hefði það álit á mér sjálfum. En það situr hér í deildinni hv. þm., sem þykist öllum meiri eins og Filisteinn forðum daga, en hvort það verða örlög hans eins og gamla Golíats að falla fyrir smásveini úr öðrum flokki, það mun framtíðin sýna.