22.10.1934
Efri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í C-deild Alþingistíðinda. (4801)
35. mál, Kreppulánasjóður
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Mér skildist á hv. þm. N.-Ísf., að hann teldi frv. óþarft, af því að því yrði ekki fylgt. Hann var að vitna í lögin frá 1930 og hefir sennilega lesið ummæli eftir mér upp úr þingtíðindunum. (JÁJ: Nei, það var frá umr. 1932). Ég skal benda á það viðvíkjandi þessu ákvæði um samkomulag milli seljanda og kaupanda, að það ákvæði var sett inn í lögin í sjútvn. Nd. vegna samkomulags við einn nm., sem hafði svo mikla „interesse“ fyrir þessum fleyg, enda var þá aðstaða til vigtunar miklu lakari yfirleitt en hún er nú. En síðan 1930 hefir margt komið fram, sem gerir það fyllilega réttmætt að vigta fremur en mæla. Jafnvel þó sá ágalli sé lagfærður, sem fram kom á mælitækjum, þá er samt sem áður réttast og öruggast að vigta síldina, því slíkt getur komið fyrir aftur. En þó því sé sleppt, þá er það svo, eins og ég benti á við 1. umr., að svo mikill ágreiningur er milli seljenda og kaupenda út af mælingunni, að það má heita eilíf styrjöld og stríð milli sjómannanna annarsvegar og umboðsmanns kaupenda hinsvegar. Sjómennirnir óska eindregið eftir því, sem leggja upp síld eftir máli, að þeir mættu vera lausir við tortryggni verkstjóranna um, að þeir dragi af málunum. Í öðru lagi er það upplýst, að menn á þeim skipum, sem ýmist leggja upp hjá verksmiðjum, sem mæla eða vega, að þeir hafa fyllilega þótzt komast að raun um, að meira komi úr skipunum þar, sem síldin er vegin, heldur en þar, sem hún er mæld. Það kemur sérstaklega fyrir, þegar síldin er slæpt; þá fer meira í málin heldur en þegar hún er stíf, eins og ný síld er, en það er fátítt, að bræðslusíld sé ný. Af þessum ástæðum verða meira en 135 kg. í málinu. Það er því augljóst, að vigtunin er réttasta aðferðin til þess, að allir hlutaðeigendur geti verið öruggir, enda hefir það fyllilega sýnt sig, að svo er, því allar hinar stærri verksmiðjur hafa nú tekið þessa aðferð, bæði ríkisverksmiðjan, verksmiðja Goos á Siglufirði og Krossanesverksmiðjan, sem hafa haft vigtun nú um tveggja til þriggja ára skeið, og síðast Sólbakkaverksmiðjan. Sumar þessar verksmiðjur eru minni en Hesteyrarverksmiðjan. Ég hygg, að það sé ekki rétt hjá hv. þm., þó ég hafi engin gögn til að afsanna það, að síldarlýsismagn á Hesteyri og Sólbakka hafi verið hlutfallslega jafnt, miðað við síldarmagn. Ég á bágt með að trúa þessu, en mun leita mér upplýsinga um það. En þetta gæti hugsazt með því móti, að ný síld hefði alltaf verið lögð þar upp, sem vigtað var, en legin síld þar, sem mælt var. Hv. þm. var að tala um, að sjór væri í síldinni í skipunum og mældist með. Það fer að vísu dálítill sjór með síldinni niður í skipið, en hann síast úr síldinni og niður í rásir skipsins og niður í botn lestarinnar. Það er því misskilningur, að sjór sé í mælikerunum, enda er mokað upp í þau með háf, eins og hv. þm. veit, og á netinu á háfnum er líklega ½ þumlungs legglengd í möskvunum, svo það er ómögulegt, að þeir haldi sjó.
Hv. þm. segir, að ýmsar vörur, sem samkv. lögum eigi að vega, séu nú seldar eftir máli, t. d. salt. Ég skal ekki deila við hann um þetta, en það veit ég, að hér í Reykjavík er salt vegið, en ekki mælt, og sama er að segja um kol og aðra þungavöru. Hvað gert er í þessu efni úti um land, veit ég ekki. En jafnvel þó salt væri mælt, þá er auðveldara að mæla það nákvæmar en síld. Ég gat þess í framsöguræðu minni, að réttara væri að gera lögin ótvíræð með því að afnema heimildina um samkomulag. Ég mun reyna að koma fram með brtt. um það við 3. umr. og prófa hv. d., hvort hún vill fallast á þá leið. Ég játa fúslega, að það er betra heldur en frv. eins og það er. En innan n. gat ekki orðið samkomulag um þetta.
Í 2. gr. frv. er það nýmæli, að vigtarmaður, sem tekur á móti síld, sé löggiltur. Hér í Rvík eru löggiltir menn við afhendingu á kolum og salti, og virðist ekki síður, að þörf sé á slíkum mönnum einnig við síldarverksmiðjurnar, enda hefir því ekki verið mótmælt.