24.10.1934
Efri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (4807)
35. mál, Kreppulánasjóður
Magnús Jónsson:
Ég skal ekki fjölyrða um frv. að þessu sinni. Mér sýnist samt, ef brtt. þessi verður samþ., að því aukist mjög missmíði á frv. bæði að efni og frágangi. Hugsazt gæti, að verksmiðjur yrðu seltar á stofn á þeim stöðum, þar sem aðstaða væri svo ill, að ómögulegt yrði að framkvæma vigtun á síldinni, og yrðu þá skilyrðislaus fyrirmæli um það, að alstaðar skyldi vega síld, heldur óþægileg fyrir hlutaðeigendur, einkanlega ef þetta væru lög. Ef nú báðir aðilar, kaupandi og seljandi, væru á þessum stöðum hinsvegar sammála um að vilja mæla síldina, þá er ákaflega hætt við því, að svo gæti farið, að lögin yrðu höfð að engu, heldur en að útgerðin yrði að hætta.
Annars vil ég benda hv. flm. á það, að ég get ekki betur séð en að brtt. orsaki vansmíði á frv., þegar hún er felld við það. Það á að fella niður orðin „ef seljandi óskar þess“ í 1. mgr. 1. gr., en svo er aftur í næstu mgr. farið að skilgreina það, hver þessi seljandi er, sem búið er að fella burt með brtt. Mér skilst, ef á að fella niður orðið seljandi í 1. mgr., þá verði líka að fella burt skilgreininguna á því, hvað er seljandi. Þá er það ankannalegt eftir að búið er að lögleiða, að einungis skuli vega síldina, að vera að nota í lögunum mæliker fyrir sölueiningu. Því þá ekki að leggja þyngdina í kg. til grundvallar, eins og í öðrum viðskiptum, en ekki vera að burðast með mælieiningu, sem búið er að fella út gildi? Ég hygg því, að ef hv. flm. ætlar að fá frv. samþ. vansmíðalaust, þá verði hann að fá umr. frestað og fara að efna upp á nýjar brtt. til leiðréttingar á því.