07.11.1934
Efri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í C-deild Alþingistíðinda. (4830)

74. mál, loftskeytastöðvar á flutningaskipum

Magnús Jónason [óyfirl.]:

Ég vildi bara leiðrétta misskilning, sem kom fram í ræðu hv. frsm. meiri hl. n. Hann hélt því fram, að ég hefði mælt með því að fækka mönnum á skipunum og lækka laun þeirra. Ég sagði auðvitað ekki þetta, en ég spurði, hvort hv. flm. vildi ganga svo langt í því að tryggja öryggi skipverja, að vegna kostnaðar af því yrði að fækka fólki á skipunum eða lækka laun þess. Ef útgerðin ber sig ekki, er vitanlega ekki annað fyrir hendi en að selja skipin út, en ég gæti hugsað mér, að sjómenn vildu heldur vinna til þess að fá lægra kaup en að skipin yrði að selja úr landi. — Hv. þm. talaði svo nokkur orð um þá menn, sem væru með og móti uppbyggingu mannkynsins, og mér skildist, að þetta frv. ætti mjög svo að miða til uppbyggingar mannkynsins, eða hluta þess. En jafnframt benti hv. þm. mjög sláandi á það, að fjöldi manna væri nú atvinnulaus og skipin bundin upp í flokk víða um heim. En dettur þá hv. þm. ekki í hug, að þegar svona er ástatt, muni það vera hættulegt að leggja óþarflega þungar byrðar á þennan litla skipastól okkar? Það gæti sem bezt farið eins með þessi skip okkar, að þau yrðu látin liggja aðgerðarlaus inni á höfnum, því að engin leið væri til þess að láta þau bera sig. Síðustu orð hv. þm. líktust einna helzt kjósendaræðu. Hann fór að tala um okkar ágætu sjómannastétt og hvað þjóðin ætti henni mikið að þakka. Allir taka undir það, að við eigum hrausta og duglega sjómannastétt, en fyrir henni er ekki bezt séð með ráðstöfunum, sem gera það stöðugt erfiðara að halda skipum út. En allir eru sammála um það, að bæta öryggið á sjónum eins og hægt er. Hv. þm. spurði, hví við mættum ekki hafa forgöngu í heiminum í þessum efnum og breyta þessu hjá okkur áður en það væri gert í öðrum löndum. En málið horfir allt öðruvísi við eftir að alþjóðasamþykktunum hefir verið breytt. Þá verða keppinautarnir líka knúðir til þess að taka á sig þennan kostnað, en annars gera þeir það ekki, og verða þar af leiðandi betur settir í samkeppninni við okkur forgöngumennina. Ég álít því, að við ættum að bíða með þessar breytingar þar til alþjóðasamþykktunum hefir verið breytt.