13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í C-deild Alþingistíðinda. (4854)

88. mál, yfirstjórn nokkurra ríkiseigna í Ölfusi

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Það er nú svo um þetta frv. eins og fleira, sem kemur frá þessum hv. flm. (JJ), að það er á takmörkum, að hægt sé að taka það alvarlega, enda er sannleikurinn sá, að það lítur út fyrir, að þessi hv. d. hafi ekki meira en svo tekið það alvarlega, og jafnvel ekki n., sem um það hefir fjallað og þó í orði kveðnu hefir lagt til, að það næði fram að ganga, þó að hún hafi látið prenta með nál. sínu langt fskj., sem sýnir með ljósum rökum, hversu gersamlega ástæðulaus þessi löggjöf væri.

Þetta mál horfir í fáum orðum sagt þannig við, að ríkið kaupir fyrir nokkrum árum Reykjatorfu í Ölfusi. Í landi þessara jarða, sem tilheyra Reykjatorfunni, eru minnst 400—500 ha. af vel ræktanlegu landi, og auk þess nokkurt ræktanlegt land í daladrögum og hlíðum kringum Reykjakot og milli Reykjakots og Reykja. — Þjóðkunnur aldraður maður fær svo leyfi til þess að reisa sér býli á landi jarðarinnar og fær litla spildu til ræktunar, en til þess, eins og hann sjálfur segir, að þarna sé lífvænlegt, þurfti hann að fá meira land til umráða. Hv. flm. þessa máls hafði á þeim tímum, sem hann var í stjórn landsins, lofað þessum manni, að hann skyldi fá spildu úr Reykjalandi, en það dróst á langinn. Eftirmaður hans fullnægði svo þessu loforði, sem hann hafði gefið sem ráðh., og lætur Sigurð búnaðarmálastjóra — en það er maðurinn, sem þarna hafði reist sér býli — fá 4½ ha. af ræktanlegu landi í viðbót. Þegar þetta hefir gerzt, rís sami maðurinn upp, sem áður hafði lofað að láta þarna land af hendi, og segir: Hér er verið að leiða þjóðina í glötun og eyðileggja þessar miklu, verðmætu eignir, — af því að ríkið hefir afsalað sér réttinum til þessa lands um takmarkaðan tíma. Það væri nú e. t. v. hægt að skilja þetta, ef nota ætti landið í þjóðhættulegum tilgangi, en meiningin er aðeins að nota landið til ræktunar og tilrauna með ýmsar jurtir, sem annars vaxa ekki hér á landi. Það er því ekki hægt að sjá, að þjóðinni stafi stórhætta af því, þó að í kringum 1/10 partur landsins væri notaður í nokkur ár í þessum tilgangi, sérstaklega þegar þess er gætt, að ríkið hefir í sinni hendi, hvenær sem því þykir ástæða til, að svipta manninn umráðarétti yfir þessu landi, þar sem honum var ekki veitt varanlegt afsal fyrir því og hægt er að taka það eignarnámi, hvenær sem ástæða þætti til. En það, sem skeður eftir að hv. flm. hafði lofað að láta landið af hendi, er það, að þessi maður kemst í pólitíska andstöðu við hann, og virtist hv. flm. þá ekki lengur geta unnað honum þess að hafa þessa litlu landspildu til afnota, og það virðist einmitt vera ástæðan til þess, að þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 150, er fram komið. — Í frv. er svo ákveðið, að 5 manna nefnd, sem á að hafa á hendi yfirstjórn sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana ríkisins, skuli einnig falin umráð þessara jarðeigna ríkisins í Ölfusi, og til þess að öðrum en ríkinu og ríkisstofnunum sé leyfð notkun á landi þarna, þarf að fá sérstakt leyfi Alþ. í hvert sinn. Og svo klykkir út með því, að sérhver sá, sem öðlazt hefir leiguréttindi eða önnur réttindi yfir þessum landareignum skuli vera skyldur til að láta réttindi þessi af hendi við ríkið. Þarna er naumast um aðra að ræða en búnaðarmálastjóra; að vísu er eitthvað af jörðunum í byggingu, en eins og bent hefir verið á við l. umr., af hv. 1. þm. Skagf., þá er það ekki nema einföld skylda ríkisstj. að byggja jarðirnar. — Ég segi fyrir mitt leyti, að ég er ekki farinn að koma auga á, hvaða skynsamlegar ástæður mæla með því að fela spítalanefndinni umráð þessara jarðeigna. Það er að vísu svo, að þarna hefir verið reist sjúkraskýli fyrir berklasjúklinga, sem mun hafa einhver lítils háttar landnot þarna. Bú er og rekið þarna fyrir ríkisins reikning, en þó undarlegt megi virðast, þá hefir sjúkrahúsið ekki fengið þær afurðir, sem framleiddar eru á búinu, heldur eru þær fluttar suður fyrir fjall, en sjúkrahúsið fær aftur á móti keypta mjólk í Mjólkurbúi í Ölfusinga. Svo var það a. m. k. í stjórnartíð hv. flm.

Það mætti segja, að ekki væri óeðlilegt, að spítalanefndin hefði vald yfir því landi, sem sjúkraskýlin nota, eða myndu nota. En það er og yrði aðeins hverfandi lítill hluti landsins. En notkun langmests hluta landsins er og verður allt öðruvísi en svo, að spítalanefnd verði að teljast bezt hæf til að hafa yfirumsjón með því. Þetta land heyrir undir ríkisstj. eins og aðrar ríkissjóðsjarðir, og ég get á engan hátt séð, að spítalanefnd sé hæfari til að hafa umsjón með þeim heldur en ríkisstj. Það er alveg ástæðulaust að vantreysta stj. til þess að nota landið á sem hagkvæmastan hátt.

Um 3. gr. frv. er það að segja, að það er með öllu ástæðulaust, meðan til eru 500 ha. af óræktuðu landi, sem stj. getur gert við hvað sem hún vill, að fara að svipta þann eina mann, sem þarna hefir staðið að ræktun, umráðarétti yfir tæpum 5 ha. lands. Þetta er svo hlægileg fjarstæða, að varla er hægt að búast við því, að hv. flm. ætlist til, að þetta sé tekið alvarlega. Þótt svo færi, að ríkið þyrfti á þessu landi að halda, áður en leigufrestur er útrunninn, stendur því opið hvenær sem er að taka þennan umráðarétt eignarnámi.

Annars get ég látið nægja í þessu sambandi að vísa til hins ýtarlega álitsskjals Sigurðar búnaðarmálastjóra, sem prentað er í áliti meiri hl., þar sem hann sýnir fram á, hversu fráleitt það sé að svipta sig nú umráðaréttinum yfir þessu landi.

Ég læt þetta nægja um málið að sinni, þar sem auðsætt er, að ekki á að taka það alvarlega.