27.10.1934
Efri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í C-deild Alþingistíðinda. (4866)
101. mál, vegalög
Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Þetta frv. er breyting á vegalögunum, sem við hv. 10. landsk. berum fram í samráði við hv. þm. Snæf. Þegar siðast var gerð breyt. á vegalögum landsins, 1933, fór svo, að þessi vegur varð útundan og var ekki tekinn í þjóðvegatölu. Þessi vegarspotti, sem við förum fram á nú að verði gerður að þjóðvegi, er yfir 60 km. á lengd og liggur sunnan við Hvammsfjörð út Hörðudal og Skógarströnd áleiðis til Stykkishólms. Ég vil taka það fram, að fallið hefir niður endirinn á greininni. Þar á að standa, til Stykkishólmsvegar, en ekki til Stykkishólms, eins og auðvitað er.
Vegur þessi liggur um allþéttbýl héruð, yzt er Miðbæli, þá Hörðudalur, síðan tekur við þéttbýlasti hluti Skógarstrandar og svo Helgafellssveit. Á þessum vegi vantar víða brýr, sem þarf að setja á næstu árum, en víða er leiðin þannig frá náttúrunnar hendi, að ekki þarf að leggja nema spotta og spotta, en sjálfgerður vegur á milli.
Mér hefir fundizt rétt að hefja vegagerðina frá Vesturlandsvegi, bæði fyrir það, að þar er þéttbýlla, og svo auk þess er erfiðasti parturinn kringum Álftafjörð. Ég tel, að á þann hátt fáist fljótar bílasamband við sveitirnar heldur en ef byrjað væri hinumegin frá. Hvað Dalasýslu snertir, þá hefir hún nú svo langa sýsluvegi í samanburði við íbúatölu, að sýslusjóður getur ekki sinnt öllum þeim vegum eins og þarf. Vona ég því, að Alþ. bregðist vel við og taki í þjóðvegatölu þann veg, sem mest þörf er á, með því líka að þessi verur hefir um langt skeið verið þjóðvegur í raun og veru, þó hann nyti ekki styrks úr ríkissjóði. Ég vil svo að lokum óska þess, að frv. fari til 2. umr. og samgmn.