02.11.1934
Efri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í C-deild Alþingistíðinda. (4875)
125. mál, ritsíma- og talsímakerfi
Flm. (Jón Baldvinsson):
Þetta litla frv. um breyt. á símalögunum ætti ekki að þurfa að valda ágreiningi. Efni frv. er að taka upp í símalögin línu frá Setbergi við Grundarfjörð að Hallbjarnareyri. Á þessari leið eru 12 bæir, sem fá not þessarar línu. Þarna eru nú mjög erfiðar samgöngur, og þótt gert sé ráð fyrir, að vegur verði lagður til Grundarfjarðar, getur orðið dráttur á því, að sá vegur komi, því að þarna er mjög örðugt að leggja veg. Ég get ekki sagt um það með vissu, hve löng þessi símalína verður, en geri ráð fyrir, að vegalengdin sé 5—8 km. Ég vil svo mælast til þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og samgmn.