18.12.1934
Efri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í C-deild Alþingistíðinda. (4890)

140. mál, hússtjórnar- og vinnuskóli fyrir konur í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Jónas Jónsson) [óyfirl.]:

Menntmn. hefir athugað málið og komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé vænlegt að samþ. það eins og það lá fyrir. Ber til þess m. a. það, hve erfiðir eru tímarnir, svo að Alþingi hefir hallazt að því að leggja ekki mikið fé í húsabyggingar. Kemur það t. d. fram í því, hve litlar upphæðir hafa verið lagðar til byggingar gagnfræðaskóla í Reykjavík og Flensborgar í Hafnarfirði.

Þar sem n. kom saman um, að nauðsynlegt er að fá hússtjórnarskóla í Rvík, en sá hinsvegar, hve lítið er um fé, kom henni saman um, að rétt væri að skjóta þessu til stj., að hún athugi, hvort ekki sé hægt að breyta Kvennaskólanum í Rvík í hússtjórnarskóla. Minni hl. n. er okkur ekki samdóma í þessu, og mun hann gera frekari grein fyrir sinni afstöðu.

Ég skal ekki fjölyrða um málið, en aðeins geta þess, að nauðsynlegt var að stofna sérstakan kvennaskóla 1880. Það var sjálfsagt þá, því að konur áttu ekki rétt á því að ganga í ýmsa þá skóla, er þá voru hér á landi. Þetta var nauðsynleg sjálfsvörn kvenna. Sú eina kona, sem á sæti hér á þingi, lét það í ljós í n., að hún hefði haft í huga að ganga í menntaskóla Rvíkur, en yfirvöldin meinuðu henni það, af því að hún var kona. En nú er skólunum ekki lengur lokað fyrir konum, nema þá að um sé að ræða sérskóla, sem lúta að sérstökum störfum karlmanna. Því var kvennaskólanum á Blönduósi breytt í hússtjórnarskóla. Þörfin á þessu var svo mikil, bæði á Blönduósi og Laugum, að árlega er vísað frá um 50 konum, sem vilja komast í skólana. Sýnir þetta, að hérlendar konur kunna að meta hússtjórnarskólana. Við ættum að læra af Húnvetningum í þessu efni. Fyrsta sporið til að greiða fyrir sérmenntun kvenna er að breyta kvennaskólanum hér í hússtjórnarskóla. Mætti byrja á að breyta honum svo, með litlum tilkostnaði, að 50—60 stúlkur gætu stundað þar hússtjórnarnám. Þessa leið þyrfti að rannsaka.