28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í C-deild Alþingistíðinda. (4933)
154. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað
Magnús Guðmundsson:
Ég vildi spyrjast fyrir um það, hvort tilætlunin sé sú, að þessar 50 þús., sem á að borga árlega í 4 ár úr ríkissjóði samkv. frv., séu hinar sömu og ræðir um í 13. gr. fjárlagafrv., eða hvort hér sé um nýjar 200000 kr. að ræða til hafnargarðs á Siglufirði. Ég vil benda á, ef hér er um nýja fjárveitingu að ræða, að það fer nokkuð mikið úr ríkissjóði til þessa eina staðar, og er óviðkunnanlegt að ákveða, að svo og svo mikið skuli borga úr ríkissjóði í nokkur ár, þegar vitað er, að margir aðrir kaupstaðir og kauptún verða alltaf að sækja undir fjárveitingavaldið til þess að fá slíkar greiðslur. Mér finnst, að hér sé gert upp á milli, að ákveða, að ríkissjóður sé skyldugur til þess að borga upphæð í nokkur ár, en svo eiga aðrir bæir undir högg að sækja með að fá greiðslur til hafna á hverju þingi. Ég tek undir það, sem hv. frsm. sagði, að það er óvanalegt að sjá í hafnarlögum heimild til þess að leggja gjald á vörur, sem farið er með um höfnina, ekki til þess að láta það renna í hafnarsjóð, heldur í bæjarsjóð. Þetta er þó ekki einsdæmi, og ég skil vel, af hverju það er komið. Bæjarsjóðir sjá sér ekki fært að ná í nægilegar tekjur með beinum sköttum, af því að ríkið er að seilast lengra og lengra inn á þá skattstofna, sem ætlaðir eru bæjarfélögunum, og þetta leiðir til þess, að það verður að leyfa bæjar- og sveitarfélögum að innheimta tolla. Ef haldið er lengra áfram á þessari braut, að ríkissjóður sölsi undir sig skattstofna bæjanna, þá verður hann að láta þeim eftir nokkuð af sínum tekjustofnum, t. d. tollana eða hluta af þeim. Þá verður skipt um tekjustofn, bæjar- og sveitarfélaga annarsvegar og ríkissjóðs hinsvegar.
Það hefir verið bent á þetta áður, og það er sýnilegt, að það munu koma fleiri og fleiri og biðja um þetta sama. Ég get skýrt frá því, að ég hefi verið beðinn um að flytja slíkt frv. fyrir hreppa í mínu kjördæmi, en ég hefi ekki viljað ganga inn á þessa braut fyrr en séð er, að það sé ómögulegt að komast hjá því. En það skal sannast, að ef tekjuskattshækkun sú, sem hæstv. stjórn biður um nú, verður samþ. hér á þessu þingi, þá mun rigna niður á næsta þingi beiðnum í þessa átt, af því að sveitar- og bæjarfélög geta ekki náð þeim tekjum, sem þau þurfa, með útsvörum ofan á þennan stórhækkaða tekjuskatt.
Ég mun því greiða atkv. með þessari till. n., því að ég skil vel nauðsynina á þessu, og það er ekki til neins að berjast á móti því að útvega bæjarfélögunum nýja tekjustofna, þegar ríkið hefir hnuplað þeim tekjustofnum, sem þau áttu að hafa.