28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í C-deild Alþingistíðinda. (4935)
154. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað
Þorsteinn Briem [óyfirl.]:
Ég verð að taka undir það með hv. 1. þm. Skagf., að mér finnst óviðkunnanlegt að setja svona ákvæði í frv. eins og þetta er. Ég sé ekki heldur, að það sé nauðsynlegt á neinn hátt. Fjárlagaákvæðið er komið, og mér finnst eðlilegt, að það haldi áfram að vera fjárlagaatriði.
Annars var það annað atriði, sem kom mér til að biðja um orðið. Það er ákvæðið í niðurlagi 3. gr. Þar segir, að ekki beri að greiða prestlaunasjóði það, sem ræðir um. Þar sem þar er um opinbert fé að ræða, þá sé ég ekki ástæðu til, að farið sé að gefa þessum kaupstað allmikið fé svona alveg með beinum l. Vitanlega skiptir það hér minna máli, að hér er um kirkjujarðasjóð að ræða, en ekki prestlaunasjóð. Mér finnst þess vegna, að hér sé gengið inn á afaróviðeigandi braut með þessu ákvæði.
Jafnframt þessu vil ég minnast á það, að þessi 100% hækkun á hafnargjöldum, sem eigi að renna beint í bæjarsjóð, til þess að hægt verði að lækka útsvör í Siglufjarðarkaupstað, það álít ég varhugaverða braut.
Þá vil ég sérstaklega benda á eitt atriði, sem ekki hefir verið bent á áður, og það er það, að ef samþ. verður þessi heimild handa þessum kaupstað, þá koma fleiri kaupstaðir á eftir, og þá er kaupstöðunum gefinn réttur til að skattleggja ekki aðeins þær vörur, sem bæjarbúar nota, heldur einnig að leggja neyzluskatt á íbúa nærliggjandi héraða, en það tel ég mjög hættulegt. Við skulum hugsa okkur, að Rvík komi næst á eftir og fái slíka heimild. Þá er það ekki lítið verzlunarsvæði, sem Rvík öðlast þannig rétt til að skattleggja, því að það eru ekki aðeins sveitirnar austan fjalls, heldur einnig Borgarfjörður, sem verzlar meira og minna við Rvík, og þannig hefði þá Rvík rétt til að skattleggja nauðsynjavörur annara landsmanna.
Í þessu efni er nokkuð einstakt með einn kaupstað á landinu. Það eru Vestmannaeyjar. Sá kaupstaður mundi ekki nema að litlu leyti geta fengið aðstöðu til að skattleggja aðrar sveitir, en það er þá líka eina undantekningin, því að þótt Siglufjörður sé nú afskekktur, þá líða ekki mörg ár þangað til verzlunarsvæði Siglufjarðar færist allmikið vestur um Skagafjörð, og ef þetta ákvæði verður samþ., þá fær Siglufjörður þar aðstöðu til að skattleggja þá, sem verða að kaupa vörur þar.