28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í C-deild Alþingistíðinda. (4939)
154. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað
Magnús Guðmundsson:
Ég er hissa á því, að hv. 1. þm. Eyf. skuli ekki finna muninn á því, að fá hafnarl., þar sem er ákveðið, hvað eigi að borga á hverju ári. (BSt: Það er búið að ákveða það í fjárl.). En er ekki munur á að fá það ákveðið í hafnarl. eða að þurfa á hverju ári að sækja það undir fjárveitinguvald þingsins? Það er mikill munur á að fá þetta tryggt í l. eða að verða að eiga það undir fjárveitingavaldinu á hverju þingi.
Ég þarf ekki mikið að ræða um verzlun Fljótamanna við Siglufjörð, en það er vitað, að hún er mikil. Ég sagði aldrei, að þeir verzluðu eingöngu við Siglufjörð, heldur að þeir verzluðu þar mikið. Og það eru fleiri en tveir hreppar; þeir eru þrír, og jafnvel hluti af þeim fjórða, sem verzla þar mikið.