30.11.1934
Efri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (4942)

154. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

N. hafði ekki athugað, að málið myndi koma svona fljótt á dagskrá, og ber því fram tvær skrifl. brtt. við frv. Fyrri brtt. gerir ráð fyrir, að framan við orðin „50 þús. kr.“ í 1. gr. frv. komi „allt að“. Þetta þykir réttara, ef svo skyldi fara, að kaupstaðurinn geti ekki lagt fram sína upphæð alla. 2. brtt. er við 3. gr. frv., að í stað orðsins „Prestlaunasjóði“ komi „Kirkjujarðasjóði“.