30.11.1934
Efri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (4944)
154. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað
Þorsteinn Briem [óyfirl.]:
Ég á tvær brtt. við frv. Sú fyrri er við 3. gr., að síðasti málsl. falli niður. Hann hljóðar svo í frv.:
„Prestlaunasjóði ber ekki endurgjald fyrir þær eignakvaðir, óhagræði eða takmörkun á afnotarétti, sem ræðir um í grein þessari“.
Við 2. umr. gerði ég grein fyrir þessu. Þetta er ekki annað en aukaframlag af opinberu fé til hafnarinnar á Siglufirði. Kann ég illa við, að því sé laumað þarna inn í og komi ekki fram sem framlag beint úr ríkissjóði, heldur úr öðrum sjóðum, fráskildum ríkissjóði. Veit enginn, hve mikið framlag hér er um að ræða, og getur það orðið mikið fé. Tel ég þetta því ástæðulausara, sem kirkjujarðasjóður hefir ekki fengið nema mjög lítið afgjald af þessu landi. Sjóðurinn hefir borið mikinn þunga af þessum eignum, hann hefir lagt fé til sjóvarnargarða og kostað þar miklu til, en bæjarstj. hefir hinsvegar leyft sandtöku undir garðinum og stórspillt þar með eigninni, enda þótt vitamálastjóri hafi kvartað um þetta. Ég tel, að hér sé um aukaframlag að ræða, sem ekki hefir verið flutt áður, og að öðrum aðilum en skyldi sé gert að leggja þetta fram.
Hin brtt. er við 10. gr., að aftan við 4. málsl. 2. málsgr. komi: „enda séu almennar neyzluvörur ávallt undanskildar hækkuninni“.
Þarna er í frv. verið að ganga braut, sem, ef áfram er gengin, stefnir til þess, að kaupstöðum sé gefinn réttur til að skattleggja nærliggjandi verzlunarhéruð. Þó að Siglufjörður sé ekki mikill verzlunarstaður, liggja þar þó góðar sveitir að, og verður þó meira um það, þegar vegur kemur yfir Siglufjarðarskarð. Því vil ég ekki, að þetta nái til almennra neyzluvara.