06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (4962)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Þessu litla frv. þurfa ekki að fylgja mörg orð. Varð ekki hjá því komizt að setja l. um þetta efni, því að fyrirsjáanlegt er, að Alþingi getur ekki komið saman á reglulegum tíma. Hefir nokkuð verið um það deilt, hvenær það ætti að koma saman, og er í frv. gert ráð fyrir, að samkomudagurinn sé 15. marz. Ýmsir eru e. t. v. þeirrar skoðunar, að þessi undirbúningstími sé of stuttur. Væri e. t. v. heppilegra að færa hann yfir á 20. eða 25. marz. Mun ég ekki láta það neinu máli skipta, þótt svo yrði gert.