11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í C-deild Alþingistíðinda. (4976)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði, vil ég taka það fram, að það er ómögulegt að undirbúa þingmál á skemmri tíma en þeim, sem frv. gerir ráð fyrir. Eftir áramót liggur m. a. fyrir staðfesting á þeim lögum, sem þetta þing skilar frá sér, og síðan er ekki nema 112 mán. til þess að undirbúa málin til næsta þings.

Hvað því viðvíkur að halda þing á haustin, vil ég taka það fram, að eftir þeirri reynslu að dæma, sem fengizt hefir þetta haust, yrði óhjákvæmilegt að byrja haustþing fyrr en gert var síðastl. haust. Það eru mörg mál eftir á þinginu, sem ekki er búið að ljúka við, sökum þess hvað tíminn var stuttur. Byrji þingið aftur á móti fyrr en í haust, þá er sá tími mjög óheppilegur fyrir bændur. Þess vegna er ekki farið fram á annað en að gera þessa undantekningu, sem óhjákvæmileg er í þetta skipti.